VG samstiga um Líbíurannsókn
Samstaða var um það á flokksráðsfundi VG um helgina að fordæma aðgerðir NATO í Líbíu. Þetta segir Auður Lilja Erlingsdóttir, framkvæmdastýra VG, og bendir á að utanríkisstefna, þ.e. friðarstefna, sé ein af grunnstoðunum í stefnu VG. Flokksmenn álíti það brýnt að Ísland standi utan hernaðarbandalaga.
Hana rekur ekki minni til að nokkur fundarmanna hafi greitt atkvæði gegn ályktuninni.
Auður Lilja tekur fram að friðarstefnan sé grasrótinni mjög ofarlega í huga. Hluti félagsmanna hafi stutt ályktun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna en um leið og NATO hafi tekið yfir aðgerðirnar hafi þær farið út fyrir þann ramma sem var samþykktur á vettvangi Sameinuðu þjóðanna.
Aðspurð um breytingartillögu á ályktuninni um Líbíu er snýr að rannsókn á þeirri ákvörðun íslensku ríkisstjórnarinnar að styðja ályktun Sameinuðu þjóðanna, svarar Auður Lilja því til að hún hafi verið lögð fram að kvöldi síðasta föstudags. Hana reki með líku lagi ekki minni til þess að nokkur viðstaddra hafi verið henni mótfallin.
En samkvæmt heimildum Morgunblaðsins voru þau Steingrímur J. Sigfússon, Katrín Jakobsdóttir, Svandís Svavarsdóttir, Ögmundur Jónsson og Jón Bjarnason viðstödd umræðurnar um að fordæma bæri árásirnar en þau eru sem kunnugt er ráðherrar í ríkisstjórn VG og Samfylkingar.
Samstaða var um það á flokksráðsfundi VG á Hótel Loftleiðum um helgina að Hitaveita Suðurnesja ætti að fara aftur í almenningseigu, enda er það í fullu samræmi við stefnu flokksins og ríkisstjórnarinnar um þjóðareign á auðlindum, að sögn Auðar Lilju.
Bloggað um fréttina
-
Þorsteinn Siglaugsson Friðardúfa Gaddafis -
Jón Valur Jensson Forysta VG friðar og fíflar sín róttækustu element, slær þannig ... -
Ólafur Gíslason "Hana rekur ekki minni til..." ??? -
Jón Kristjánsson VG vitleysingar......
Innlent »
- Telja neytendur eiga betri rétt
- Unnur Brá: Eina lausnin?
- Tæplega helmingur ók of hratt
- Umgekkst vændiskonur í opinberum ferðum
- Vatnsleki vegna ræktunar
- „Ég er komin með nóg“
- Allt að 25% verðmunur
- „Pawel virðist eitthvað misskilja ferlið“
- Perlan góður kostur fyrir safn
- Með kannabisgræðlinga í bíl
- Rammaáætlunin tilbúin á næstu dögum
- Efla þarf rannsóknir á höfunum
- Bað hana að leyna bréfunum
- Málið var kært, en fellt niður
- Óvíst um fordæmisgildi
- Farþegum með Norrænu fækkaði
- Undir áhrifum á ótryggðum bíl
- Ólafur Ingi: Fagstétt útrýmt?
- Ný stjórn Röskvu
- Innkalla rjómasprautu
- Geir Jón gefur kost á sér
- Má gera athugasemdir í næsta blaði
- Kærir Snorra til lögreglu
- Hvessir undir Eyjafjöllum
- Jón Baldvin biðst afsökunar á bréfi
- 5,5 laxar í þúsund tonnum makríls
- Stöðvarhúslóð í Bjarnarflagi könnuð
- Brotist inn í Húsaskóla
- Þvottavélin lokaði hurðinni
- Borgarstarfsmenn ósáttari
Miðvikudagur, 22.2.2012
- Þingið brást stjórnlagaráði
- Ný skátaöld að hefjast
- Hefur afplánun á Skólavörðustíg
- Auka þarf umfang vöktunar
- Dráttur í beinni
- Þingmenn lesa Passíusálmana
- Ísing á Hellisheiði
- Lánað án trygginga og heimildar
- Allt að 100 ný störf
- Fimm sviptir á Suðurgötu
- Lagaramminn ekki sá einfaldasti
- Mikið sungið í bankanum
- Lögðu hald á marijúna og e-töflur
- Ábendingar til borgarinnar
- 2,1 milljarður í þróunarsjóði
- Jón Baldvin íhugar lögbann
- Varasamur vegarkafli
- Færri fara í tæknifrjóvganir
- Notaði munnhörpu sem hnúajárn
- Fá ekki frítt í sund
- Segist ekki saka sýslumenn um lögbrot
-
Ómarkviss þjóðaratkvæðagreiðsla
- Stjórnlagaráð
- Umfjöllun í Nýju lífi um bréf Jóns Baldvins Hannibalssonar
- Grunnskólakennari fordæmir samkynhneigð
- Fjárlagafrumvarp 2011
- Landsdómur
Svipaðar fréttir
- Sunnudagur, 22. maí 2011, Innlent Vitnar um hótanir forystu VG
- Þriðjudagur, 4. janúar 2011, Innlent Mikill átakafundur hjá VG
- Mánudagur, 29. ágúst 2011, Innlent Einhugur í VG um úrsögn úr NATO
- Fimmtudagur, 26. janúar 2012, Innlent Svandís: ESB ekki lausn á vanda Íslands
- Laugardagur, 27. ágúst 2011, Innlent Vilja rannsóknarnefnd vegna Líbíu
-
Hundarnir finna dópið strax
-
Umferðamiðstöð sprengd í Peshawar
-
Færir Advania forystu?
-
Fangaverðir hjálpuðu föngum að flýja
-
Fundu lík fimm ára stúlku
-
Talinn hafa skotið bekkjarsystur sína
-
Kristrún: Eigum séns á að komast í úrslitakeppnina
-
Bragi: Sorglegt baráttuleysi




































