Hrina uppboða í næstu viku

Reykjavík úr lofti.
Reykjavík úr lofti. mbl.is/Golli

Annríki verður hjá sýslumönnum á höfuðborgarsvæðinu og á Austurlandi í næstu viku en þá verða alls boðnar upp eitt hundrað fasteignir. Má þar nefna að boðnar verða upp átta íbúðir við Ögurhvarf í Kópavogi en Kópavogsbær er þar gerðarbeiðandi.

Flestar eignanna, eða 41, eru í Kópavogsbæ og fara uppboðin fram fimmtudaginn 8. september næstkomandi.

Þá verða 19 eignir boðnar upp í Hafnarfirði þriðjudaginn 6. september og átta eignir í Fjarðabyggð miðvikudaginn 7. september.

Loks verða 32 eignir boðnar upp í Reykjavík næsta miðvikudag og fimmtudag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert