Þorsteinn lýsir yfir sakleysi

Héraðsdómur Reykjavíkur.
Héraðsdómur Reykjavíkur. mbl.is/Hjörtur

Þorsteinn Húnbogason, fyrrum sambýlismaður Sivjar Friðleifsdóttur, þingkonu Framsóknarflokks, lýsti sig saklausan af ákærum þegar mál hans var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur nú fyrir stundu.

Þorsteini er gefið að sök að hafa komið fyrir staðsetningarbúnaði í bíl sem Siv hafði til umráða án vitundar hennar og þannig getað fylgst með ferðum hennar haustið 2010. Hefur hann verið ákærður fyrir brot á fjarskiptalögum.

Aðalmeðferð í málinu hefst 11. október næstkomandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert