Enginn grundvöllur fyrir aðgerðum Bandaríkjanna
mbl.is/Ómar Óskarsson
Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, segir hvorki lagalegan né vísindalegan grundvöll fyrir aðgerðum Bandaríkjanna vegna hvalveiða Íslendinga.
Viðskiptaráðherra Bandaríkjanna útnefndi Ísland samkvæmt svonefndu Pelly-ákvæði í júlí sl. og lagði til við Bandaríkjaforseta að gripið yrði til diplómatískra aðgerða gegn Íslandi vegna hvalveiða Íslendinga. Forsetinn ákvað í gær að fara að tillögu viðskiptaráðherrans og tilkynnti jafnframt að ekki yrði gripið til neinna viðskiptalegra aðgerða, segir í tilkynningu frá ráðherranum.
„Fyrir liggur að hvalveiðar Íslendinga eru löglegar og alþjóðleg viðskipti þeirra með hvalaafurðir eru í samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar. Jafnframt eru veiðar Íslendinga á hrefnu og langreyði sjálfbærar og byggðar á traustum vísindalegum grundvelli."
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra segir bandarísk stjórnvöld ekki vera sjálfum sér samkvæm þegar þau gagnrýna annars vegar veiðar Íslendinga á langreyði en leiti hins vegar eftir stuðningi Íslands og annarra aðildarríkja Alþjóðahvalveiðiráðsins við veiðar Bandaríkjamanna á norðhval frá Alaska.
„Vísindaleg gögn sýni að langreyðarveiðar Íslendinga séu sjálfbærar engu síður en norðhvalsveiðar Bandaríkjamanna. Þess ber að geta að ákvörðun verður tekin um kvóta Bandaríkjanna á norðhval til fimm ára á ársfundi ráðsins í Panama á næsta ári og þurfa Bandaríkin stuðning 3/4 hluta aðildarríkjanna til að kvótinn verði samþykktur," segir í tilkkynningu frá ráðuneytinu.
Bloggað um fréttina
-
Axel Jóhann Hallgrímsson Af hverju.... -
Ridar T. Falls 6 orða saga #833 -
Ingvi Rúnar Einarsson Obama leggur lágt,í að safna fjármagni í kosningasjóð sinn. -
Sleggjan og Hvellurinn gott dæmi.
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 12. september 2011, Innlent Ræddu við Bandaríkjamenn um hvalveiðar
- Miðvikudagur, 20. júlí 2011, Innlent Útnefningin vekur undrun
- Miðvikudagur, 13. júlí 2011, Innlent Gagnrýni svarað á ársfundi
- Fimmtudagur, 6. október 2011, Innlent Efast um að hvalveiðarnar séu sjálfbærar
- Fimmtudagur, 25. nóvember 2010, Innlent Bandaríkjamenn vilja ræða hvalveiðar Íslendinga
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri




































