Ferðamaður í sjálfheldu

Björgunarsveitarmenn frá Húsavík leita nú ferðamanns í sjálfheldu.
Björgunarsveitarmenn frá Húsavík leita nú ferðamanns í sjálfheldu. mynd/Sighvatur Karlsson

Björgunarsveitir frá Húsavík og Akureyri leita nú ferðamanns sem sagður er í sjálfheldu við Náttfaravík. Tilkynntu gangnamenn í Kinn vestan Skjálfandaflóa að þeir hefðu séð til manns þar. Björgunarsveitir frá Húsavík og Aðaldal sigla á staðinn en undanfarar frá Akureyri munu ganga. Ekki er ljóst á þessari stundu hversu ofarlega maðurinn er eða hversu langan tíma tekur að komast að honum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka