Ætlaði að klappa en var bitin

Kona sem ætlaði að klappa hundi í miðborginni í gærkvöldi var bitin í höndina, að því er kemur fram á facebook-vef lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Hundurinn var tjóðraður við staur á einkalóð. Konan fór inn á lóðina og hugðist klappa hundinum. Hann brást illa við og beit í hönd hennar svo á sá.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert