Þjófar flúðu undan lögreglu

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í nótt tvo menn sem voru að reyna að brjótast inn í hús í Breiðholti. Mennirnir flúðu af vettvangi, en lögreglan náði þeim eftir talsverðan eltingaleik.

Að sögn lögreglu óku mennirnir um tíma á um 130 km hraða. Lögreglunni tókst að stöðva þá við Vífilfell á Bæjarhálsi. Þeir gista nú fangageymslur og verða yfirheyrðir í dag. Ekkert liggur því fyrir um hvort þeir hafa fleira á samviskunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert