SA vísa orðum forsætisráðherra á bug
Samtök atvinnulífsins vísa orðum Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, og gagnrýni frá því í gær á bug. Samtökin segja það misskilning ef forsætisráðherra haldi að SA vilji ríkisstjórninni eitthvað annað en allt hið besta. Þvert á móti hafi verið reynt að styðja stjórnina til góðra verka með ráðum og dáð.
„Það er ógæfa ríkisstjórnarinnar að hún virðist hvorki geta né vilja fara að góðum ráðum jafnvel þótt hún hafi sjálf ákveðið að þiggja þau,“ segir í athugasemd sem birt er á vefsvæði samtakanna.
Meðal annars er vísað í orð forsætisráðherra sem birtust í Morgunblaðinu og eru á þá leið að samtökin hafi gengið í lið með stjórnarandstöðunni og séu að reyna að koma ríkisstjórn sinni frá völdum. Einnig er vísað í orð ráðherrans um að samtökin eigi að líta í eigin barm áður en þau gagnrýni ríkisstjórnina fyrir aðgerðarleysi. Ríkið hafi gert mun meira en atvinnulífið til að koma hjólum atvinnulífsins af stað.
„SA vinna að því að skapa fyrirtækjum landsins sem best starfsskilyrði. Frá haustinu 2008 hafa allar tillögur SA miðast við að koma atvinnulífinu af stað, efla hagvöxt og auka framkvæmdir í landinu,“ segir í athugasemd SA og þrátt fyrir fögur fyrirheit ríkisvaldsins sé allt í hægagangi á Íslandi. „Áætlunin sem átti að liggja fyrir í maí um hagvöxt og fjárfestingar er enn ekki komin fram. Stórar fjárfestingar í orku- og iðnaðarverkefnum dragast. Litlar sem engar fjárfestingar eru í sjávarútvegi vegna þeirrar óvissu sem stjórnmálamenn hafa skapað og það hefur áhrif í öðrum atvinnugreinum, ekki síst á landsbyggðinni.“
Þá segir að allir þeir sem fylgst hafi með samskiptum Samtaka atvinnulífsins við ríkisstjórnina viti að samtökin hafa flutt ítarlegar tillögur um hvernig skapa megi þannig aðstæður að störfum fjölgi, skatttekjur aukist og lífskjör batni. Það er atvinnulífið sem skapar störfin en stjórnvöld ákveða rammann sem fyrirtækin starfa innan. „Því miður hefur ríkisstjórnin ekki borið gæfu til að fylgja eftir eigin yfirlýsingum og hollráðum Samtaka atvinnulífsins.“
Bloggað um fréttina
-
Heimir L Fjeldsted Undanhald -
Magnús Helgi Björgvinsson Held að SA ættu nú aðeins að slaka á! -
Sleggjan og Hvellurinn Lykilhlutverk. -
Ómar Geirsson LYGI !!!!!!!! um lygi. -
Haraldur Haraldsson Vísa orðum forsætisráðherra á bug/segjum en og aftur hvar værum ...
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 17. janúar 2012, Innlent Vísa ásökunum á bug
- Þriðjudagur, 16. ágúst 2011, Innlent Mótmæla skattahækkunum
- Mánudagur, 11. apríl 2011, Innlent Ómakleg yfirlýsing forsetans
- Föstudagur, 20. janúar 2012, Innlent Samningum ekki sagt upp
- Sunnudagur, 6. febrúar 2011, Innlent SA: Loðnubrestur af mannavöldum yfirvofandi
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri




































