Oftast lægsta verð í Lyfjaborg

Lyfjaborg í Borgartúni var oftast með lægsta verðið þegar verðlagseftirlit ASÍ gerði verðsamanburð á lausasöluvörum sl. mánudag. Skoðaðar voru vörur eins og smokkar, varasalvi og fæðubótarefni.

Hæsta verðið var oftast hjá Lyfjum og heilsu í Reykjanesbæ, í 11 tilvikum af 36 og Skipholts apótek var næstoftast með hæsta verðið eða í 7 tilvikum af 36. Verðmunur á þeim vörum sem skoðaðar voru var frá 11% upp í 220%, en í flestum tilvikum var munurinn á hæsta og lægsta verði 25-50%.

Mestur verðmunur í könnuninni var á fæðubótarefninu B6, frá Ein á dag, sem var dýrast á 1483 krónur hjá Apótekaranum á Akranesi, Urðarapóteki, Lyfjum og heilsu í Reykjanesbæ og Skipholts apóteki en ódýrast á 463 krónur hjá Lyfjaveri við Suðurlandsbraut. Munurinn  var 1020 krónur eða 220%.

Minnstur verðmunur í könnuninni var á tannþræði, frá Oral-B-satin tape, sem var ódýrastur á 725 kr. hjá Lyfjavali í Álftamýri og dýrastur á 806 kr. hjá Lyfjum og heilsu í Reykjanesbæ. Verðmunurinn var 11% eða 81 kr.  

Af öðrum vörum í könnuninni má nefna að Elite smokkar frá Durex 12 stk. í pakka voru dýrastir á 2.030 kr. hjá Árbæjarapóteki og ódýrastir á 1.090 kr. hjá Lyfjaborg. Verðmunurinn var 86%. Þungunarpróf frá „Yes or no“ var dýrast á 1478 krónur hjá Reykjavíkurapóteki á Seljavegi og ódýrast á 1310 krónur hjá Apóteki Garðabæjar, sem gerir 168 kr. verðmun eða 13%.

Fæðubótarefnið Spirulina var dýrast á 5080 krónur hjá Apóteki Hafnarfjarðar og ódýrast á 3850 krónur hjá Austurbæjarapóteki í Ögurhvarfi sem var 32% verðmunur. Bossakremið frá Lansinoh var dýrast á 3035 kr. hjá Garðsapóteki á Sogavegi og ódýrast á 2117 kr. hjá Akureyrarapóteki sem var 43% verðmunur.

Vefur Alþýðusambands Íslands

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert