Bankarnir skili hagnaði til samfélagsins
Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, sagði í stefnuræðu sinni á Alþingi í kvöld, að það væri samfélagsleg skylda bankanna að skila gríðarmiklum hagnaði undanfarinna missera aftur til samfélagsins með einhverjum hætti, m.a. með því að lækka vexti.
„Það segir sig sjálft að það verður ekki þolað að þessi mikli hagnaður verði nýttur til þess eins að greiða hluthöfunum arð eða hækka laun æðstu stjórnenda úr takt við launaþróun annarra, eins og áður gerðist. Bankarnir, sem árin og jafnvel áratugina fyrir hrun, sögðu sig úr siðferðilegu sambandi við þjóðina hljóta nú að hugsa sinn gang í þessum efnum," sagði Jóhanna.
Hún sagði í ræðunni, að stjórnvöld þurfi að setja fram heildstæða stefnu um erlenda fjárfestingu en stefnumörkun á þessu sviði sé í undirbúningi og verði kynnt Alþingi sem þingsályktunartillaga á þessu þingi.
„Fjármögnun er einnig mikilvægt skilyrði fjárfestinga. Ýmislegt hefur áunnist á því sviði. Endurreisn fjármálakerfisins er langt komin, aðgengi hefur fengist að erlendum lánamörkuðum, vextir hafa lækkað, skuldatryggingaálag hefur lækkað, skuldaaðlögun heimila og fyrirtækja er vel á veg komin og stöðugleiki ríkir í hagkerfinu. Það vekur því athygli að þrátt fyrir mjög rúma lausafjárstöðu bankanna er þar lítil sem engin útlánaaukning til fjárfestinga.
Á sama tíma birtast ótrúlegar tölur um þann ofurhagnað sem bankarnir hafa skilað á undanförnum misserum, m.a. vegna hárra útlánsvaxta. Blasir ekki við að bankarnir þurfa að lækka vexti sína enn frekar til að koma fjárfestingum af stað? Háir vextir bankanna eru uppskrift að lítilli fjárfestingu og efnahagslegri stöðnun.
Það er ekkert launungarmál að ríkisstjórnin telur að bankarnir þurfi að leggja meira af mörkum til samfélagsins og uppgjör þeirra sýna að þeir eru svo sannarlega aflögufærir. Á sama tíma og heimilin, fyrirtækin og velferðarþjónustan búa við samdrátt í kjölfar hruns fjármálakerfisins er það samfélagsleg skylda bankanna að skila þessum mikla hagnaði aftur til samfélagsins með einhverjum hætti," sagði Jóhanna.
Fjárfestingar lykill að hagvexti
Forsætisráðherra sagði, að lykillinn að hagvexti væri ekki opinberar framkvæmdir eða verkefni, þótt þau gegni mikilvægu hlutverki við núverandi aðstæður. Lykilatriði sé að setja kraft í innlendar jafnt sem erlendar fjárfestingar, einkum í útflutningsgreinum, og skapa skilyrði til þess að svo geti orðið.
Sagði Jóhanna, að hagvöxtur hér á landi sé áætlaður um 3% í ár og margt bendi til að horfur um hagvöxt á næsta ári séu vænlegri en ýmsar spár sýni.
Bloggað um fréttina
-
Ómar Geirsson Jóhanna strögglar áfram á rauðu. -
Gísli Foster Hjartarson Þetta á nú við víða!!! -
Kristinn Karl Brynjarsson Nærmynd af Jóhönnu Sigurðardóttur. -
G. Tómas Gunnarsson Ríkisstjórn í ruglinu -
Sigurveig Eysteinsdóttir Ræða þingmanna....... -
Gunnar Waage Viðurkenndu það Jóhanna, -
Jón Baldur L'Orange Hvern þykist þú vera að blekkja, Jóhanna? -
Sigurður Antonsson Fjarar undan stjórninni -
Sigurður Haraldsson Jóhanna þú ert búin að fá! -
Sleggjan og Hvellurinn Feikilega vitlaust.
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 4. október 2010, Innlent Bankarnir hafa dregið lappirnar
- Þriðjudagur, 12. október 2010, Innlent Samfélagsleg sátt forsenda niðurfærsluleiðar
- Þriðjudagur, 5. október 2010, Innlent Ómakleg gagnrýni á bankana
- Fimmtudagur, 2. febrúar 2012, Innlent Beinasta leiðin að ganga í ESB
- Mánudagur, 3. október 2011, Innlent Svigrúm til lækkunar skulda
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri





































