Samið við Kvikmyndaskólann

Nemendur Kvikmyndaskólans hafa vakið athygli á stöðu hans með ýmsum …
Nemendur Kvikmyndaskólans hafa vakið athygli á stöðu hans með ýmsum hætti nú í haust. mbl.is/Kristinn

Mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur gert styrktarsamning við Kvikmyndaskóla Íslands og gildir samningurinn til 31. júlí á næsta ári með möguleika á framlengingu til 31. desember 2012.

Í tilkynningu frá ráðuneytinu segir, að forsvarsmenn skólans hafi tilkynnt að þegar í stað verði hafist handa við að undirbúa skólahald þannig að það megi hefjast sem fyrst og að nemendum og starfsmönnum skólans verði kynnt hvernig að því verður staðið.

Samningurinn gerir ráð fyrir að rekstur skólans verði styrktur með allt að 46,2 milljóna króna framlagi úr ríkissjóði til ársloka 2011 og með allt að 56,4 milljóna framlagi árið 2012. Samningurinn er með fyrirvara um að fjárhagsleg endurskipulagning á rekstri skólans gangi eftir þannig að hann uppfylli skilyrði fyrir viðurkenningu sem einkaskóli á framhaldsskólastigi fyrir 15. nóvember næstkomandi.

Þá er einnig kveðið á um að eigi síðar en 15. október gefi fulltrúar nemenda, fulltrúar kennara og stjórn Kvikmyndaskóla Íslands út sameiginlega yfirlýsingu um að sátt ríki á milli aðila um starf og stjórnun skólans skólaárið 2011 til 2012.

Mennta- og menningarmálaráðuneytið segir, að hafin sé vinna við stefnumótun í kvikmyndanámi. Í þeirri vinnu verði haft samráð við fagfólk í kvimyndagerð og menntamálum auk hagsmunaaðila. Áætlað sé að niðurstaða liggi fyrir í janúar 2012.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert