Ný Vestmannaeyjaferja kostar um 4 milljarða króna

Herjólfur í sinni fyrstu ferð frá Vestmannaeyjum til Landeyjahafnar.
Herjólfur í sinni fyrstu ferð frá Vestmannaeyjum til Landeyjahafnar. mbl.is/RAX

Hönnun á nýrri Vestmannaeyjaferju sem hentar Landeyjahöfn tekur um þrjú ár og kostnaður er áætlaður 4-4,5 milljarðar króna, að sögn Hreins Haraldssonar vegamálastjóra.

Eyjamenn hafa fengið nóg af samgöngutruflunum milli lands og Eyja og vilja sitja við sama borð og aðrir landsmenn.

Í umfjöllun um samgöngumál Vestmannaeyja í Morgunblaðinu í dag segir, að ljóst sé að Herjólfur henti illa til siglinga í Landeyjahöfn og í staðinn vilja Eyjamenn fá Breiðafjarðarferjuna Baldur eða sambærilegt skip þar til nýtt skip verður smíðað. „Við höfum engan tíma til að bíða,“ segir Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Eyjum.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert