Skip tók niðri á sandrifi

Höfnin í Sandgerði.
Höfnin í Sandgerði. www.mats.is

Flutningaskipið Axel, sem skráð er í Færeyjum, tók niðri á sandrifi þegar það var á leið frá Sandgerðishöfn um tvöleytið í nótt.

Bátur frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg og togbátur drógu skipið á flot og var það laust um klukkan fjögur. Sigldi það undir eigin vélarafli til Helguvíkur þar sem kafari mun skoða hvort skemmdir hafi orðið á því.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert