Virkjanakostir ekki óendanlegir

Kárahnjúkar
Kárahnjúkar mbl.is/Gúna

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segir að það sé rangt að valið sé á milli atvinnuuppbyggingar og umhverfisverndar. Hún segir að sjávarafla séu takmörk sett af náttúrunnar hendi. „Náttúran setur líka uppbyggingu í orkufrekum iðnaði takmörk til framtíðar, því vænlegir virkjanakostir, hvort sem horft er frá fjárhagslegu eða umhverfissjónarmiði eru ekki óendanlegir. Stóriðja og sjávarútvegur eru  hluti af lausninni en engin allsherjarlausn.“

Þetta sagði forsætisráðherra í setningarávarpi sínu á Tækni- og hugverkaþingi 2011, sem haldið var í dag undir yfirskriftinni Nýsköpun - uppspretta verðmæta.

„Það er rangt að valið sé á milli atvinnuuppbyggingar og umhverfisverndar. Það sýna rannsóknir á græna hagkerfinu. Á því sviði höfum við mýgrút tækifæra til að skapa græn og vel launuð störf og þar  vísa ég í nýlega skýrslu um nefndar um  græna hagkerfið. Allt ber að sama brunni; fjölbreytni í okkar atvinnulífi er að aukast og atvinnustefna ríkisstjórnarinnar beinist að því.“

Í ávarpi sínu fjallaði ráðherra einnig um starfsumhverfi atvinnulífsins og sagði m.a.: „Starfsskilyrði atvinnulífsins eru sannarlega mikilvægt og viðvarandi verkefni stjórnvalda. Í því efni  skiptir fyrirkomulag peninga- og gengismála sköpum. Króna sem innpökkuð er í gjaldeyrishöft út á við og varin af verðtryggingu inn á við er ekki góður kostur til framtíðar. Slíkt fyrirkomulag peningamála mun trauðla gagnast til kröftugrar atvinnuuppbyggingar og gæti leitt til þess að íslensk fyrirtæki flytji höfuðstöðvar sínar til útlanda, en það er m.a. til umræðu hér á þinginu. Innganga í Evrópusambandið og upptaka evru er að mínu mati besti kosturinn í þessum efnum og felur jafnframt tvímælalaust í sér sóknarfæri fyrir íslensk sprotafyrirtæki.“

Ræðan í heild

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert