„Með vindinn í fangið“

Atvinnuleysi er um 11% á Suðurnesjum.
Atvinnuleysi er um 11% á Suðurnesjum. mbl.is/Ómar

„Okkur finnst klukkan ganga ansi hægt núna og okkur finnst að í mörgu höfum við vindinn í fangið. Þrátt fyrir fjárfestingarsamninga ríkisstjórnarinnar við Norðurál þá er þeim ekki fylgt eftir, jafnvel unnið á móti þeim af ráðherrum í ríkisstjórninni,“ segir Ásmundur Friðriksson, bæjarstjóri í Garði.

Á mánudaginn, 10. október, stendur sveitarfélagið Garður fyrir opnum fundi með Kristjáni Möller, formanni nýrrar atvinnumálanefndar Alþingis, með yfirskriftinni „Hvenær fær fólk á Suðurnesjum vinnu?“. Þingmaður kjördæmisins, Oddný Harðardóttir, verður einnig gestur fundarins og eru allir Suðurnesjamenn hvattir til að fjölmenna á hann.

„Kristján Möller hefur lýst yfir miklum vilja til þess að koma þessum atvinnumálum af stað hérna suður frá og við bindum miklar vonir við hans málflutning. Hann er náttúrlega ráðandi maður í þinginu og Oddný Harðardóttir einnig þannig að núna erum við að fá fólkið sem virkilega getur haft áhrif á að aðstoða okkur við að hleypa frekara lífi í að þessi atvinnumál komist af stað. Það er ekki eingöngu að HS Orka og Norðurál semji um rafmagnið hér heldur þarf líka Landsvirkjun að koma að þessu og ríkisstjórnin þarf að sýna meiri vilja í því að fara í að virkja neðri hluta Þjórsár. Við erum að vona að þetta fólk komi með svörin við því, hvað ríkið geti gert til að ýta þessu verkefnum frekar áfram sem hafa verið í biðstöðu árum saman,“ segir Ásmundur.

Ásmundur segir nánast ekkert hafa gerst í atvinnumálum á Suðurnesjum frá efnahagshruninu en atvinnuleysi á Suðurnesjum er það mesta á landsvísu hlutfallslega, um 11%, að sögn Ásmundar. Það sé 11% of mikið. „Það sem við erum hræddust við er náttúrlega þetta vonleysi sem fer að grípa um sig. Nú bíðum við eftir góðum fréttum og ég hef grun um það að við fáum jafnvel góðar fréttir á fundinum,“ segir Ásmundur, að þingmennirnir komi með útspil sem skipti máli. Því muni fundurinn á mánudaginn verða mjög áhugaverður. „Núna eru kannski að koma hingað þingmenn sem vilja blása á móti, taka á með okkur í samtaka áralagi og koma atvinnulífinu af stað,“ segir Ásmundur en hann var staddur á aðalfundi með Sambandi sveitarfélaga á Suðurnesjum, þar sem atvinnumál voru til umræðu, þegar blaðamaður ræddi við hann.

Ásmundur Friðriksson, bæjarstjóri í Garði.
Ásmundur Friðriksson, bæjarstjóri í Garði.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert