Aukin velta í dagvöruverslunum

Reuters

 Velta í dagvöruverslun jókst um 3,2% á föstu verðlagi í september miðað við sama mánuð í fyrra og um 8,6% á breytilegu verðlagi. Leiðrétt fyrir árstíðabundnum þáttum jókst velta dagvöruverslana í september um 1,6% frá sama mánuði í fyrra. Verð á dagvöru hefur hækkað um 5,3% á síðastliðnum 12 mánuðum.

Sala áfengis jókst um 6,7% í september miðað við sama mánuð í fyrra á föstu verðlagi og um 10,1% á breytilegu verðlagi. Leiðrétt fyrir árstíðabundnum þáttum nam samdráttur í veltu áfengis í september 0,3% frá sama mánuði í fyrra. Verð á áfengi var 3,2% hærra í september síðastliðnum en í sama mánuði í fyrra.

Samdráttur í sölu á fatnaði

Fataverslun dróst saman um 3,1% í september miðað við sama mánuð í fyrra á föstu verðlagi og um 3,4% á breytilegu verðlagi á sama tímabili. Leiðrétt fyrir árstíðabundnum þáttum dróst velta fataverslunar í september saman um 2,1% frá sama mánuði árið áður. Verð á fötum var 0,2% lægra en í sama mánuði fyrir ári. 

Velta skóverslunar dróst saman um 0,4% í september á föstu verðlagi en jókst um 0,8% á breytilegu verðlagi miðað við sama mánuð í fyrra. Verð á skóm hækkaði um 1,1% frá september í fyrra.

Raftæki hafa lækkað í verði

Velta húsgagnaverslana jókst um 12,4% í september frá sama mánuði í fyrra á föstu verðlagi og um 16,6% á breytilegu verðlagi. Verð á húsgögnum var 3,7% hærra í september síðastliðnum miðað við sama mánuð í fyrra. Velta sérverslana með rúm jókst um 23,7% frá sama mánuði í fyrra á föstu verðlagi. Velta í sölu skrifstofuhúsgagna var 11,5% meiri í september síðastliðnum samanborið við sama mánuð í fyrra á föstu verðlagi.

Sala á raftækjum í september jókst um 7,1% á föstu verðlagi og um 2,0% á breytilegu verðlagi. Verð á raftækjum var 4,8% lægra en í september 2010.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert