Tekinn blóðugur á hárgreiðslustofu

Lögreglan
Lögreglan mbl.is

Karlmaður var handtekinn á hárgreiðslustofu við Grensásveg í Reykjavík í morgun, þar sem hann hafði brotist inn. Lögreglu var tilkynnt um innbrotið og þegar hana bar að garði var maðurinn enn á vettvangi.

Um góðkunningja lögreglu reyndist vera að ræða. Hann hafði brotið rúðu til að komast inn á hárgreiðslustofuna og var skorinn og blóðugur á hendi. Maðurinn var fluttur á slysadeild þar sem saumað var fyrir sárin og hann sefur nú úr sér í fangaklefa lögreglu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert