Ók á ljósastaur

Frá Borgarnesi.
Frá Borgarnesi. mbl.is/Sigurður Bogi

Maður ók á ljósastaur í Sandvík í Borgarnesi á fjórða tímanum í nótt. Hann var fluttur á sjúkrahús á Akranesi til rannsóknar.

Ökumaðurinn var einn í bílnum. Grunur leikur á um að hann hafi verið undir áhrifum lyfja eða fíkniefna. Bifreiðin skemmdist mikið.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert