Góður stuðningur við Steingrím

Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra.
Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra nýtur trausts um 67,5% stuðningsmanna Vinstri grænna, samkvæmt nýrri könnun sem MMR vann fyrir Viðskiptablaðið. Katrín Jakobsdóttir, varaformaður nýtur stuðnings 19,4% flokksmanna þegar spurt er um stuðning í embætti formanns.

Meðal stuðningsmanna VG mælist Ögmundur Jónasson með 3,2% stuðning og Svandís Svavarsdóttir með 9,9% stuðning.

Alls voru 921 einstaklingur spurður á dögunum 6.-10. október.

Frétt Viðskiptablaðsins

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert