33 sagt upp á Ísafirði

KNH verktakar á Ísafirði hafa sagt upp öllum starfsmönnum sínum, …
KNH verktakar á Ísafirði hafa sagt upp öllum starfsmönnum sínum, 33 að tölu. mynd/bb.is

KNH verktakar á Ísafirði hafa sagt upp öllum starfsmönnum sínum, 33 að tölu, að því er kom fram í fréttum Ríkisútvarpsins.

Fyrirtækið hefur unnið að ýmsum verklegum framkvæmdum, meðal annars við Suðurstrandarveg en verkefninu þar er nú lokið. Ennfremur hefur það unnið að vegagerð á Vopnafirði og er þeim framkvæmdum að ljúka. 

Fyrirtækið hefur verið í greiðslustöðvun frá því í maí.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert