Heita fullum stuðningi

Össur Skarphéðinsson og Nikolai Wammen.
Össur Skarphéðinsson og Nikolai Wammen. Ljósmynd/utanríkisráðuneytið

Ráðherrar utanríkismála og Evrópumála hétu á fundum með utanríkisráðherra Íslands í dag eindregnum stuðningi danskra stjórnvalda við mögulega aðild Íslands að ESB og vilja Dana til að viðhalda góðum gangi í  viðræðunum. Fundurinn fór fram í tengslum við fund Norðurlandaráðs í Kaupmannahöfn.

Á fundunum fóru ráðherrarnir yfir stöðu mála í aðildarviðræðum Íslands og Evrópusambandsins en tveir kaflar í viðræðunum voru opnaðir og þeim lokað nú í október. Þá ræddu þeir fyrirhugaða formennsku Dana í Evrópusambandinu sem hefst um áramót en Össur hefur lýst því yfir að hann vilji opna alla útistandandi kafla í aðildarviðræðunum í formennskutíð Dana.

Á fundinum með Evrópuráðherra Dana staðfesti Nikolai Wammen eindreginn stuðning danskra stjórnvalda við mögulega aðild Íslands að ESB og vilja Dana til að viðhalda góðum gangi í  viðræðunum. Ráðherrarnir ræddu stöðu mála á evrusvæðinu og aðgerðir ESB til ráða bug á skuldavanda einstakra ríkja.

Á fundi utanríkisráðherra með Villy Søvndal ræddu ráðherrarnir einnig málefni Palestínu og sameiginlega hagsmuni á norðurslóðum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert