Tíð útivistarslys í síðustu viku

Kafarar í Silfru.
Kafarar í Silfru. Ómar Óskarsson

Þrívegis var lögreglan á Selfossi kölluð til í síðustu viku vegna útivistarslysa. Einna alvarlegast var lærbrot ungrar konu en hún féll af vélsleða á Langjökli, skammt frá Skálpanesi. Var þyrla notuð til að flytja konuna á slysadeild. Þá ökklabrotnaði kona á göngu í Reykjadal og köfunarslys varð í Silfru.

Konan sem öklabrotnaði var á göngu í Reykjadal ofan við Hveragerði. Hún var á leið niður bratta brekku þegar hún rann til í blautum jarðvegi með fyrrgreindum afleiðingum.  Björgunarsveitir voru kallaðar út til að koma konunni til byggða og var hún svo flutt með sjúkrabifreið á slysadeild. 

Talið er að frosið hafi í leiðslum hjá nema í köfun sem var að kafa með kennara í Silfru á Þingvöllum.  Skyndilega fór súrefni að flæða óheft úr öndunarlunga. Kennarinn sem fylgdist vel með nemanda sínum kom auka lunga fyrir á nemandanum en sama gerðist þar að súrefni flæddi út.  Þá var gripið til öryggisbúnaðar sem gerði það að verkum að nemandinn skaust upp á yfirborðið af 18 metra dýpi. Nemandinn var fluttur til aðhlynningar á slysadeild Landspítala í Fossvogi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert