Framleiðsla hafin á nýju vistvænu eldsneyti

Benedikt Stefánsson, framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar Carbon Recycling International. stækka

Benedikt Stefánsson, framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar Carbon Recycling International. mbl.is

Íslenska hátæknifyrirtækið Carbon Recycling International hefur nú hafið framleiðslu á vistvænu eldsneyti úr koltvísýringsútblæstri og orku frá jarðvarma. Verksmiðja CRI, sem staðsett er við Svartsengi, er sú fyrsta sinnar tegundar í heiminum sem framleiðir eldsneyti með því að endurvinna koltvísýring. Notkun slíks eldsneytis í stað jarðefnaeldsneytis dregur úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda.

Öll orka sem og koltvísýringur til framleiðslunnar eru fengin úr jarðvarma frá orkuveri HS Orku í Svartsengi við Grindavík. Verksmiðjan framleiðir vistvænt metanól sem blandað verður við bensín og hentar þannig öllum bensínbílum, í samræmi við íslenskt og evrópskt regluverk.

N1 og CRI undirrituðu nýlega samkomulag um innlenda markaðssetningu á eldsneytinu. “Við erum að móta það með þeim núna hversu hratt þetta fer af stað, en markmiðið er að þetta verði helst á sem flestum bensínstöðvum N1 þegar að fram líða stundir.  Við hefjum söluna á einni stöð en gangi allt að óskum verður farið að dreifa eldsneytinu á fleiri stöðvar upp úr áramótum,“ segir Benedikt Stefánsson, framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar Carbon Recycling International.

Að sögn Benedikts er verksmiðja CRI með framleiðslugetu til íblöndunar sem annar þriðjungi árlegrar bensínnotkunar á Íslandi. Hún sé þó hönnuð þannig að hægt sé að þrefalda hana að stærð og anna þannig spurn eftir vistvænu metanóli til blöndunar við allt bensín hér á landi.

Carbon Recycling International (CRI) var stofnað árið 2006. Höfuðstöðvar fyrirtækisins eru í Borgartúni 27, Reykjavík.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Vísitalan hækkaði um 38% 2006-2010

12:34 Greining Íslandsbanka bendir á að vísitala neysluverðs hækkaði frá upphafi desember 2006 til desember 2010 um tæplega 38%.   Meira »

Standa vörð um hagsmuni hátekjuheimila

Ögmundur Jónasson, fráfarandi innanríkisráðherra, ásamt öðrum ráðherrum á síðasta ríkisráðsfundi ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur.
12:34 Ögmundur Jónasson, fráfarandi innanríkisráðherra, segir ríkisstjórn Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks ætli sér að standa vörð um hagsmuni sumra heimila í landinu, þ.e. hátekjuheimila. Þá segir hann að margt jákvætt hafi áunnist í innanríkisráðuneytinu í sinni ráðherratíð. Meira »

„Það vantar allar útfærslur“ myndskeið

Steini0
11:50 Steingrímur J. Sigfússon, fráfarandi atvinnuvegaráðherra, er lítt hrifinn af stefnuyfirlýsingu nýrrar ríkisstjórnar Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks. Að hans mati vantar margt í hana. Meira »

30% nýnema við lögregluskólann konur

11:48 Embætti ríkislögreglustjóra í samvinnu við kynjafræði við Háskóla Íslands vinnur að könnun meðal starfandi lögreglumanna. Um er að ræða könnun á líðan og samskiptum í starfi, á samspili vinnu og einkalífs og viðhorfi til stöðu karla og kvenna innan lögreglunnar. Meira »

Síðasti ríkisráðsfundurinn myndskeið

Stjorn0
11:18 „Ég vona að það verði eins mikil kraftur í þessari ríkisstjórn [ríkisstjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks] og þessari sem er að fara frá,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir, fráfarandi forsætisráðherra, er hún mætti á sinn síðasta ríkisráðsfund á Bessastöðum í dag. Meira »

Talaði í þrettán og hálfan tíma

Fyrirlesturinn hófst klukkan 9 í gærmorgun og stóð fram á kvöld.
10:33 Stefán Pálsson sagnfræðingur sló í gær óformlegt Íslandsmet í ræðuhöldum þegar hann hélt þrettán og hálfs tíma fyrirlestur um myndasögurnar um Sval og Val. Meira »

Reyklaus áhöfn á Beiti NK

Beitir NK-123.
11:47 Sá áfangi náðist eftir loðnuvertíðina í vetur að Beitir NK varð reyklaust skip. Það hefði einhvern tímann þótt saga til næsta bæjar að enginn í áhöfn íslensks fiskiskips af þessari stærð reykti um borð en það hefur löngum viljað loða við íslenska sjómenn að þeir væru býsna háðir tóbakinu. Meira »

Eyjamenn hafna hóteli

Teikning af hótelinu.
11:08 Vestmannaeyingar höfnuðu því í íbúakosningu að bærinn myndi veita byggingarleyfi fyrir hóteli á lóð við Hásteinsgryfju.  Meira »

Fólkið í ríkisstjórn Íslands

Sigmundur Davíð Gunnlaugssson er yngstur til að gegna embætti forsætisráðherra á Íslandi frá stofnun lýðveldisins.
10:10 Greint var frá því í gærkvöldi hverjir sitja í nýrri ríkisstjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks. Ekkert þeirra hefur setið áður í ríkisstjórn Íslands en Kristján Þór Júlíusson er elsti ráðherrann og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er sá yngsti. Meira »

Gömul föt fá framhaldslíf

10:09 Rauði krossinn og Eimskip standa fyrir árlegu fatasöfnunarátaki nú um helgina, 25.-26. maí. Til að létta undir með fólki við vortiltekt verður gámum komið fyrir við allar sundlaugar ÍTR í Reykjavík og við sundstaði í Kópavogi, Hafnarfirði, Mosfellsbæ, Garðabæ og Álftanesi. Það er því kjörið að skella sér í sund í sömu ferðinni. Meira »

Allt að tveggja tíma brottfarartöf

Frá Keflavíkurflugvelli.
09:35 Brottför allra flugvéla sem fara áttu frá Keflavíkurflugvelli tafðist um allt að tvær klukkustundir í morgun vegna bilunar sem upp kom í sjálfvirku flugupplýsingakerfi í flugstjórnarmiðstöðinni í Reykjavík sem miðlar gögnum til flugumferðarstjóra. Meira »

Vélar fastar á Keflavíkurflugvelli

09:18 Töluverð röskun hefur orðið á millilandaflugi á Keflavíkurflugvelli en allar vélar hafa setið fastar á vellinum í morgun vegna bilunar í tölvubúnaði hjá flugumsjónarmönnum. Farþegi segir í samtali við mbl.is að hann hafi beðið í vélinni í rúman klukkutíma en vélin átti að fara í loftið kl. 7:50. Meira »

Einungis þriðjungur gaf stefnuljós

09:02 Tveir af hverjum þremur bílstjórum gáfu ekki stefnuljós þegar þeir óku út úr hringtorgi á mótum Fjarðarhrauns, Flatahrauns og Bæjarbrautar í Hafnarfirði. Meira »

Lokað um Reykjahverfi

08:55 Vegurinn um Reykjahverfi (vegur númer 87) verður lokaður í dag á milli kl:10:00 og 12:00 vegna ræsagerðar, samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Meira »

Spilað til úrslita í Keflavík

Spáð í spilin á Bridshátíð.
08:41 Norðurlandamót í sveitakeppni í brids verður haldið um helgina, dagana 24.-26. maí, á Icelandair Hótel Keflavík. Mótið hefst kl. 10.00 í fyrramálið, föstudag, og lýkur um kl. 15.00 á sunnudag. Meira »

„Áfall að horfa á pabba berja mömmu“

Systurnar Thelma Ásdísardóttir og Ruth Ásdísardóttir bjuggu við ofbeldi alla sína barnæsku.
09:00 „Það er gríðarlegt áfall sem fylgir því að horfa upp á pabba berja mömmu,“ segir Ruth Ásdísardóttir, en hún og fjórar systur hennar ólust upp við gróft og langvarandi ofbeldi í æsku. Hún segir ofbeldið á heimilinu hafa markað sig fyrir lífstíð. Meira »

„Ég er að fara að gjósa“

Eldfjöll gefa frá sér merki skömmu áður en þau gjósa. Vísindamenn vilja átta sig betur ...
08:44 Fréttamenn breska ríkisútvarpsins heimsóttu Ísland nýverið til að kynna sér rannsóknir Veðurstofu Íslands sem vinnur nú að því að efla vöktun íslenskra eldfjalla í þeirri von að geta spáð fyrir um möguleg eldgos. Meira »

Phelps: Óráð að sækja um ESB

Edmund S. Phelps
08:37 Bandaríski hagfræðiprófessorinn Edmund Phelps telur óráð fyrir Ísland að sækja um Evrópusambandsaðild eins og sakir standa og tekur þar í sama streng og ný ríkisstjórn Íslands. Meira »
Söluaðili óskast til að selja geislavörn á snjallsíma.
Söluaðili óskast til að selja geislavörn á snjallsíma. Um er að ræða einkaley...
Til sölu Ford Hobby árg. '06 ek. 20 þús. km
Til sölu húsbíll, Ford Transit Hobby T600FC árg. 2006, ekinn aðeins 20 þús. km....
Kommóða, lítill skenkur, stofuborð, eikarskápar gler..
Kommóða, lítill skenkur, stofuborð, eikarskápar gler. Stofuborð, eik, verð 12 ...
Mitsubishi Pajero 1998 til sölu
Mitsubishi Pajero 1998 til sölu á 590 þúsund. Skipti á smábíl koma til greina. E...
 
Aðstoðarskólastjóri
Leikskólakennsla
Aðstoðarskólastjóri við leikskólann ...
15352 flugvallarslökkvibifreiðar

Útboð nr. 15352 Flugvallarslökkvibi...
15411 sigtún 2 - ríkiskaup

Tilboð óskast í fasteignina Sigtún ...
Framhaldsskólakennarar
Grunn-/framhaldsskóla
Framhaldsskólakennarar â€" Menntas...