Fyrstu jólatrésljósin tendruð

Jólatré er komið að nýju á túnið við Heilsuverndarstöðina.
Jólatré er komið að nýju á túnið við Heilsuverndarstöðina. mbl.is/GSH

Ljós voru tendruð á jólatrénu við Heilsuverndarstöðina í dag og mun þetta vera í fyrsta sinn í fimm ár sem jólatré rís á túninu en frá árinu 1954 til ársins 2006 stóð þar reisulegt jólatré hver jól.

Þorsteinn Steingrímsson, eigandi Heilsuverndarhússins, segir að eigendum og notendum þess, Landlæknisembættinu og Landspítala, hafi þótt tími til kominn til að endurnýja hina gömlu hefð.

„Við þetta hús stóð alltaf jólatré í garðinum, sem var svipað og Rammagerðarglugginn í Hafnarstræti; fólk keyrði hérna framhjá og sýndi börnunum sínum jólatréð við Heilsuverndarstöðina,“ segir Þorsteinn.

Síðastliðinn fimm ár hafi húsið hins vegar staðið ónotað og ekkert tré verið lýst upp um jólin.

Þorsteinn segir að ekki hafi staðið til að tendra ljósin á trénu í dag en að þegar unnið hafi verið að því að koma ljósunum fyrir hafi börn jafnt sem fullorðnir flykkst að og því ekki annað hægt en að láta ljósin loga.

Þorsteinn segist vona að upp frá þessu verði haldið í hefðina næstu fimmtíu ár, eins og áður.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert