Jesús litli fær góðar viðtökur á Spáni

Úr sýningunni Jesús litli.
Úr sýningunni Jesús litli.

Leikritið Jesús litli, í uppfærslu Borgarleikhússins, var sýnt í Principal-leikhúsinu í
Vitoria á Spáni í gærkvöldi sem hluti af hinni árlegu Alþjóðlegu Vitoria-leiklistarhátíð. Samkvæmt upplýsingum frá Borgarleikhúsinu tekur leikhúsið 1000 manns í sæti og var uppselt  á sýninguna.

Leikhópurinn flutti sýninguna í nýrri enskri þýðingu en hún var einnig textuð á spænsku. Var leikhópnum fagnað ákaft í sýningarlok og klappaður margsinnis upp, en í leikritinu er tekið á jólaguðspjallinu með nýjum hætti.

Að sögn Borgarleikhússins voru margir stjórnendur leikhúsa og leiklistarhátíða á sýningunni og lýstu nokkrir áhuga á að fá sýninguna til sýninga. Eru þegar hafnar viðræður um sýningar í Madrid og í Bilbaou.

Nýlega samdi Borgarleikhúsið við umboðsskrifstofuna Ysarca um kynningu og sölu á Jesús litla í spænskumælandi löndum. Einnig eru til skoðunar sýningar í fleiri Evrópulöndum.

Sýningar hefjast á Jesús litla í Borgarleikhúsinu á nýjan leik nú í lok vikunnar, þriðja leikárið í röð. Jesús litli hlaut Íslensku leiklistarverðlaunin, Grímuna í fyrra sem leiksýning ársins.

Leikritið er eftir Benedikt Erlingsson, Berg Þór Ingólfsson, Halldóru Geirharðsdóttur,  Kristjönu  Stefánsdóttur  og  Snorra  Frey  Hilmarsson. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert