IE semur við tékkneskt félag

Iceland Express.
Iceland Express.

Gengið hefur verið frá samkomulagi við tékkneska félagið CSA Holidays, sem er í eigu CSA Airlines, um flug fyrir Iceland Express frá og með mánudeginum 21. nóvember. Samstarfi við breska flugfélagið Astreus er lokið.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Iceland Express.

Þar segir að ekki sé gert ráð fyrir neinni röskun á áætlunarflugi Iceland Express vegna þessarar breytingar sem sé liður í víðtækri endurskipulagningu sem nýir stjórnendur félagsins hafi ráðist í til aukinnar hagræðingar og bættrar þjónustu.

Segir að CSA Holidays og móðurfélag þess CSA Airlines séu með virtustu flugfélögum í Evrópu og hafi verið í fremstu röð hvað stundvísi varðar síðastliðin tíu ár. Samtök flugfélaga í Evrópu, Association of European Airlines, hafi útnefnt CSA stundvísasta flugfélag Evrópu af 26 stærstu flugfélögum álfunnar á árinu 2010 og allt bendir til þess að félagið muni varðveita þann sess á yfirstandandi ári.

„Miklar vonir um bætta þjónustu Iceland Express við farþega sína eru bundnar við þennan ráðahag. Til viðbótar við gjörbreyttar aðstæður til bættrar stundvísi er flugvélafloti CSA bæði vandaður og öflugur. Vélarnar sem nýttar verða til flugsins fyrir Iceland Express eru af gerðinni Airbus-320. Þær taka 180 farþega og eru mun rýmri en þær flugvélar sem félagið hefur haft aðgang að hingað til. Önnur vélanna er smíðuð á þessu ári og hin árið 2004 og verða þær yngstu flugvélarnar í áætlanunarflugi á Íslandi og jafnframt fyrstu Airbus vélarnar sem þjóna flugi til og frá landinu.

Þjálfun flugliða Iceland Express til starfa um borð í Airbus flugvélunum hefst á næstu dögum og munu þeir innan skamms annast alla þjónustu um borð. Iceland Express hefur einnig hafið undirbúning að því að fá íslenskt flugrekstrarleyfi til þess að styrkja svigrúm sitt á samkeppnismarkaði enn frekar.

Með þessari breytingu er stórt skref tekið í átt til aukins áreiðanleika í þjónustu Iceland Express við farþega sína. Um leið er stoðum rennt undir bætta afkomu í rekstri félagsins enda öll frávik og tafir í áætlunarflugi afar dýrkeyptar. Til enn frekari hagræðingar hefur sumaráætlun næsta árs verið einfölduð frá því sem verið hefur og mun félagið einbeita sér að vinsælustu áfangastöðum sínum og leggja um leið grunn að áframhaldandi forystuhlutverki í þeirri miklu verðsamkeppni sem ríkir í flugi til og frá landinu,“ segir í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert