Huang snýr sér til Finnlands og Svíþjóðar
Sú ákvörðun íslenskra stjórnvalda að hafna fjárfestingu Huangs Nubos í Grímsstöðum á Fjöllum er fljótfærnisleg og óábyrg og endurspeglar ósanngjarnt og einangrað fjárfestingaumhverfi. Þetta fullyrðir Huang við kínverska vefmiðilinn China Daily.
„Þessi höfnun endurspeglar ósanngjarnt og einangrað fjárfestingaumhverfi sem kínversk fyrirtæki þurfa að eiga við í útlöndum,“ er haft eftir Huang í einkaviðtali í höfuðstöðvum fyrirtækis hans, Zhongkun Investment Group, í Peking í dag. Huang segir að ákvörðun Ögmundar Jónassonar innanríkisráðherra þýði mikið tap fyrir bæði Ísland og kínverska fjárfesta.
Huang segir að sér hafi borist fréttin um að fjárfestingunni væri hafnað klukkan 4 um nótt að kínverskum tíma, aðfaranótt laugardags. Enginn hafi óskað eftir viðræðum við hann fyrir hönd íslensku ríkisstjórnarinnar. Hann bendir á að það hafi verið landeigendurnir sjálfir sem áttu frumkvæði að því að bjóða honum til sölu 300 ferkílómetra jörð á Grímsstöðum á Fjöllum.
Sjálfur segist hann ekki tapa neinu með þessum málalyktum, en þær séu hinsvegar markverðar vegna þess að þær undirstriki þá fordóma sem kínverskir fjárfestar þurfi að mæta á erlendri grundu. „Það er enn tvöfalt siðferði í gangi,“ hefur China Daily eftir honum. Vesturlönd séu áköf í að „hvetja til opnunar kínverskra markaða en loki um leið eigin dyrum fyrir kínverskum fjárfestingum.“
Huang segir ástæðu til að vara aðra kínverska fjárfesta við því að fara inn á alþjóðlegan markað fyrr en þeir hafi kynnt sér rækilega pólitíska umhverfið fyrst. Hér eftir hyggist hann sjálfur beina fjárfestingum sínum til Bandaríkjanna og annarra Norðurlanda en Íslands. Nefnir hann Svíþjóð og Finnland í því samhengi.
Bloggað um fréttina
-
Haraldur Haraldsson Huang snýr sér til Finnlands og Svíþjóða///Ögmundur og c/o er ... -
Lúðvík Júlíusson Fjárfestingaumhverfið á Íslandi -
Ingibjörg Magnúsdóttir "Það er verið að stela Íslandi" sagði Ögmundur -
Tryggvi Sveinbjörnsson Var ákvörðun innanríkisráðherra röng? -
Hörður Jónasson Huang hættur við og snýr sér til Finnlands og Svíþjóðar. -
Ómar Ragnarsson Verður fróðlegt að sjá gengi Nubos í Svíþjóð. -
Njörður Helgason Það átti að skipta. -
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 28. nóvember 2011, Innlent Tap fyrir Ísland og Kínverja
- Miðvikudagur, 31. ágúst 2011, Innlent Huang: Viðskipti ekki pólitík
- Laugardagur, 1. október 2011, Innlent Á brattann að sækja
- Sunnudagur, 27. nóvember 2011, Innlent Huang gagnrýnir Vesturlönd
- Sunnudagur, 6. maí 2012, Innlent Huang segir samkomulag í höfn
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri




































