Mikið áfall ef VG snýr baki við Jóni
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, þingmaður Vinstri grænna, sagðist á Alþingi í dag styðja Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, afdráttarlaust. Sagði hún að það yrði mikið áfall fyrir VG ef flokkurinn ætlaði að snúa baki við Jóni.
Ragnheiður Elín Árnadóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, spurði Guðfríði Lilju að því í upphafi umræðu um störf þingsins, hvort hún styddi Jón Bjarnason en Ragnheiður Elín sagði, að það hefði vakið athygli í gær, að formaður VG hefði ekki getað lýst stuðningi við Jón.
Guðfríður Lilja sagði, að uppákomur helgarinnar hefðu verið með ólíkindum. M.a. hefði verið látið liggja að því, að Jón Bjarnason væri helsta vandamál ríkisstjórnarinnar.
„Þetta er náttúrulega alveg dæmalaust. Mér þætti hæstvirtur fjármálaráðherra (Steingrímur J. Sigfússon) og háttvirtur formaður þingflokksformaður VG (Björn Valur Gíslason) menn að meiri ef þeir afdráttarlaust styddu sinn ráðherra og segðu það hátt og skýrt," sagði Guðfríður Lilja.
Hún sagði að Jón Bjarnason hefði gegnum tíðina verið vopnabróðir þess fólks, sem nú væri í ríkisstjórn og ekkert dregið af sér. „Hann hefur staðið manna mest á þeirri grunnstefnu Vinstri grænna að hafna aðild að Evrópusambandinu og er lykilmaður í þeim efnum innan VG. Það væri náttúrulega gríðarlegt áfall fyrir Vinstrihreyfinguna-grænt framboð ef hún ætlaði nú að snúa baki við þessum ráðherra," sagði Guðfríður Lilja.
Hún sagði að verk Jóns Bjarnasonar væru ekki hafin yfir gagnrýni frekar en vinnubrögð annarra ráðherra. „Við skulum þá taka alla ráðherra þessarar ríkisstjórnar, allar embættisfærslur þeirra, öll vinnubrögð, til ýtarlegrar skoðunar ef á að taka Jón Bjarnason sérstaklega fyrir," sagði Guðfríður Lilja.
Einar K. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sagði að samkvæmt þessu væru þeir Steingrímur J. Sigfússon og Björn Valur Gíslason ekki menn að meiri. Ljóst væri að forusta VG styddi ekki Jón Bjarnason sem ráðherra.
Bloggað um fréttina
-
Guðjón Sigþór Jensson Kannski þurfum við meira raunsæi -
Marinó G. Njálsson Stjórnin stendur tæpt - Vill Samfylkingin kosningar? -
Sigurður Haraldsson Guðfríður! -
Tryggvi Þórarinsson Segir kona sem hefur snúið baki við þjóðinni ásamt kolleggum ... -
Gunnar Waage Forsætisráðherra verður nú að skýra mál sitt -
Tryggvi Marteinsson 29.nóvember 2011 - Egó tripp.
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 30. nóvember 2011, Innlent Stefna að því að stokka upp í ríkisstjórn fyrir árslok
- Föstudagur, 2. desember 2011, Innlent Stendur fyrir andstöðu við ESB
- Miðvikudagur, 1. júní 2011, Innlent Mikilvægt að vita um afstöðu VG
- Þriðjudagur, 29. nóvember 2011, Innlent Safna stuðningsyfirlýsingum
- Fimmtudagur, 15. desember 2011, Innlent Björn Valur: Ígildi þess að afneita hruninu
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri




































