Hálka og teiti fara ekki saman

Víða er hálka á vegum og erfitt getur verið að …
Víða er hálka á vegum og erfitt getur verið að fóta sig. RAX

Aðventan er jafnan nokkuð annasamur tími hjá sjúkraflutningamönnum, en þá er talsvert um útköll vegna meiðsla þegar fólk hrasar í hálku. Samkvæmislíf stendur jafnan í blóma þessa dagana og þegar hálka og teiti fara saman er ekki von á góðu.

„Fólk á það til að vera nokkuð reikult í spori á þessum árstíma og þegar það er að fóta sig í hálku verða stundum óhöpp,“ segir talsmaður Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins. „Þetta eru yfirleitt ekki alvarleg slys, en stundum beinbrot, bæði á höndum og fótum.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert