Pósturinn hvetur fólk núna fyrir jólin til að moka tröppur og aðgengi að húsum þegar svona mikill snjór er og koma í veg fyrir hálkubletti. Þetta auðveldar störf bréfbera til muna en burðurinn þyngist nú dag frá degi hjá bréfberum. Einnig er mikilvægt að það sé góð lýsing við útidyr og merkingar á húsum og póstkössum séu skýrar og greinilegar. Flest slys á meðal bréfbera og útkeyrslufólks Póstsins eru vegna hálku á einkalóðum eins og á tröppum, innkeyrslum og göngustígum.
Aðstoð landsmanna og tillitssemi við bréfbera auðveldar Póstinum að koma jólapóstinum örugglega til skila á sem fljótlegastan hátt, segir í tilkynningu frá Póstinum.