Nýir bílar fyrir ráðherra

Ráðherrabílar. Mynd úr safni.
Ráðherrabílar. Mynd úr safni. mbl.is/Sverrir

Ríkiskaup, fyrir hönd Rekstrarfélags stjórnarráðsbygginga, standa fyrir útboði á kaupum á ráðherrabifreiðum. Fram kemur á vef Ríkiskaupa að ekki sé ljóst hve margar bifreiðar verði keyptar

„Ekki er ljóst hve margar bifreiðar verða keyptar hvaða ár eða hvaða bifreiðar verða fyrir valinu fyrir hvert ráðuneyti. Fyrirhugað er að semja um tvo bifreiðaflokka, fl. 1: ráðherrabifreiðar og fl. 2: ráðherrabifreiðar með auknar umhverfiskröfur. Bjóðendur skulu leggja fram tilboð í bifreiðar innan þessara flokka,“ segir á vef Ríkiskaupa.

Þá segir að gert sé ráð fyrir að samið verði við fleiri en einn aðila um þessi viðskipti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert