Fréttaskýring: Reiðubúinn að halda áfram á meðan ekki er lokað á viðræður

Huang Nubo. stækka

Huang Nubo.

Morgunblaðið Sigrún Rósa Björnsdóttir sigrunrosa@mbl.is

Fjárfestirinn Huang Nubo, sem á dögunum var hafnað um undanþágu til að kaupa um 72% af 300 ferkílómetra landi Grímsstaða á Fjöllum, segist hafa orðið ráðvilltur þegar hann hafi í kjölfar þess að innanríkisráðherra birti ákvörðun sína fengið þær upplýsingar að hægt væri að halda viðræðum áfram, sem hann er reiðubúinn að gera. „Kannski er þetta séríslensk leið til að gera hlutina,“ segir Huang en Morgunblaðið átti viðtal við hann í gegnum tölvupóstssamskipti.

Hann segist persónulega ekki hafa neitt á móti innanríkisráðuneytinu en gagnrýnir málsmeðferðina harðlega og segist ráðvilltur eftir að hafa lesið svarið frá ráðuneytinu. „Ef ég var að kaupa of stórt land hefði ég búist við því að það væru nákvæm ákvæði í lögum ykkar um hámarksstærð þess lands sem erlendum fjárfestum er leyfilegt að kaupa. Það bæði ruglar fjárfesta og dregur úr vilja þeirra til að fjárfesta ef ekki fást skýr svör. Það mega alls ekki vera handahófskenndar ákvarðanir sem byggjast á velþóknun eða vanþóknun.“

Grímsstaðir á Fjöllum.

Grímsstaðir á Fjöllum. Reuters

Huang segist enn standa við þær fyrirætlanir sínar að byggja upp keðju norrænna ferðaþjónustustaða. „Upphaflega var ætlunin að gera það frá Íslandi, stofna höfuðstöðvar í Reykjavík og ráða starfsfólkið þaðan,“ segir Huang. Það myndi síðan finna fjárfestingarmöguleika á Norðurlöndum sem yrði farið í skref fyrir skref. „Hins vegar lítur ekki út fyrir að það muni ganga. Geti ég ekki fjárfest á Íslandi verð ég í sambandi við viðeigandi stofnanir í Finnlandi, Danmörku og Svíþjóð.“ Sú vinna sé þegar hafin þar sem stofnanir þar hafi þegar reynt að hafa samband. Á næstu einu til tveimur árum kanni starfsfólk á hans vegum fjárfestingarmöguleika innan þessara landa áður en hann taki svo ákvörðun.

Reiðubúinn í viðræður áfram

Haft hefur verið eftir iðnaðarráðherra, Katrínu Júlíusdóttur, að Fjárfestingastofa yrði í sambandi við Huang í því skyni að leiðbeina við fjárfestingar á Íslandi.

Hefur í viðræðum verið komið inn á þann möguleika að þú getir keypt landið, eða þá leigt það af landeigendum eða ríkinu ef það keypti landið?

„Fjárfestingastofa hafði samband við okkur í síðustu viku og við höldum sambandi í gegnum fulltrúa minn á Íslandi,“ segir Huang og lýsir ánægju sinni með að vera í sambandi við íslenskar fjárfestingastofnanir. Hann ítrekar að í viðskiptum sínum leggi hann áherslu á uppbyggingu ferðaþjónustusvæða fremur en einstakra hótela. „Ég byggi upp svæði, kaupi land eða leigi eftir því sem hentar starfseminni. Reyndar leigi ég yfirleitt land frekar en að kaupa, svo ég er opinn fyrir viðræðum um hvers konar form á fjárfestingunni. Svo lengi sem ekki er lokað á viðræður er ég reiðubúinn að halda áfram; kaupsýslumenn hafa alltaf þolinmæði í samningaviðræðum.“

Iðnaðarráðherra hefur í fjölmiðlum sagst reiðubúin til viðræðna um fjárfestingar við Huang. Hann segist aðspurður spenntur fyrir því að koma aftur til Íslands og ræða fjárfestingarmöguleika. Hann verði hvort eð er tíður gestur á Íslandi enda eigi hann þar gamla vini.

Af hverju „allt þetta land“?

Þegar Huang er spurður hvort hann þurfi „allt þetta land“ segir hann: „Ég kom ekki með stækkunargler frá Kína til Íslands í leit að landi en þetta er það land sem mér var boðið að fjárfesta í. Ástæðan fyrir því að ég hafði áhuga og ákvað að fjárfesta í hugmyndinni er sú að hún er í samræmi við ferðaþjónustuhugmyndir mínar og hvernig ég stunda viðskipti í víðara samhengi. Ég held að það gæfi ekki mikið af sér að setja upp eitt hótel einhvers staðar á Íslandi. En ef ég byggi upp ferðaþjónustu og græði upp eitthvað af auðninni og hæðunum og sé fyrir viðeigandi afþreyingu þá verður hún mjög aðlaðandi fyrir flesta ferðamenn. Ég vonast til að þeir eyði minnst þremur til sjö dögum af frítíma sínum þar. Þannig gefur hver ferðamaður meira af sér, Kínverjar, Evrópubúar, Bandaríkjamenn, Asíubúar og Rússar og efnahagslegur grunnur fyrir svæðið er byggður upp.“

Hugmyndin um golfvöll þykir nokkuð langsótt t.d. vegna veðurfars. Hvert er þitt mat?

„Ég ætla að byggja upp vistvænan golfvöll í sátt við vistkerfið á svæðinu.“ Þar séu allir þættir fyrir hendi. Grasið á svæðinu sé hægt að rækta fyrir flatirnar. Ekki sé ætlunin að halda stórmót á vellinum enda góðir golfvellir í nágrenninu. Þótt áskorun felist í að byggja upp vistvænan golfvöll, sérstaklega með tilliti til umhverfissjónarmiða, þá þurfi litla fjárfestingu til þess.

Hvað veðurfarið varðar segir Huang það sína reynslu að ferðaþjónustusvæðum heimsins sé almennt skipt í háannatíma og tímann utan hans, háð veðurfari. „Reyndar minnir veðurfarið á Íslandi nokkuð á Khasgar, svæði í norðvesturhluta Kína, þar sem ég rek stóra ferðaþjónustu; langir vetur og stutt sumur. Við höfum reynslu af því að eiga við mismunandi veðurfar og myndum verða vel undirbúin fyrir að nýta hverja árstíð sem best.“

Vestrænir fordómar

Í umræðu um landakaup þín hefur komið fram gagnrýni á reynslu Svía af tilteknum kínverskum fjárfestum.

„Þetta eru fordómar Vesturlanda gagnvart kínverskum fjárfestum. Við höfum fjárfest í Bandaríkjunum við góðan orðstír. Ég er formaður Kínadeildar í náttúruverndarsamtökunum American Nature Concervancy Association, sem vinnur mikilvægt starf við að vernda skóga og villta náttúru í Afríku og Kína,“ segir Huang en hann hafi komið að vernd fornra kínverskra þorpa og eitt þeirra hafi farið á heimsminjaskrá árið 2000.

„Ég hef haft tækifæri til að ræða ábyrgð kínverskra fjárfesta við þá sem hafa gert slíkar athugasemdir og ég geri það fúslega. Þegar litið er til 30 ára þróunar kínversks markaðshagkerfis tel ég að ég sé vel liðinn og heiðarlegur og trúi því að ég hafi lagt eitthvað fram til heimsins og alþjóðavæðingar.“

Segist vilja íslenskt vinnuafl

Einnig hefur verið rætt um hvort þú munir nýta þér innlent vinnuafl ef af fyrirhugaðri uppbyggingu verður?

„Auðvitað mun ég nota mér íslenskt vinnuafl við uppbyggingu verkefnanna. Það er sama hvar ég hef fjárfest, í Kína eða Bandaríkjunum, ég hef alltaf haldið mig við þá grundvallarreglu að fjárfestingarnar skili sér til fólksins á svæðinu.“ Þetta sé lykilþáttur í velgengni Zhongkun í Kína og Bandaríkjunum.

Komið hefur fram að þú vildir tengja þjóðgarðinn í Jökulsárgljúfrum við land Vatnajökulsþjóðgarðs. Hvernig væri það gert, en nú á ríkið 25% af landi Grímsstaða?

Huang segist mikill umhverfisverndunarsinni og vísar aftur til þess að hann er formaður Kínadeildar í náttúruverndarsamtökunum American Nature Concervancy Association. Umhverfisráðuneytið hafi þegar farið fram á að hluti landsins verði gerður að þjóðgarði. Að hans áliti sé það mjög viðeigandi og hann myndi styðja það í samvinnu við ríkisstjórnina.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Frá Þórsmörk. Úr myndasafni.

Par villtist á leiðinni í Þórsmörk

11:23 Björgunarsveitir á Suðurlandi voru kallaðar út í nótt til þess að leita að pari sem hafði verið á göngu yfir Fimmvörðuháls á leiðinni í Þórsmörk en villst af leið. Fólkið fannst síðan tveimur tímum eftir að leit að því hófst. Meira »
Frá Sauðárkróki. Úr myndasafni.

65 brautskráðir á Sauðárkróki

10:42 Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra var slitið í 33. sinn í gær við hátíðlega athöfn í íþróttahúsinu á Sauðárkróki. Samtals brautskráðust 65 nemendur að þessu sinni en 405 nemendur stunduðu nám við skólann á haustönn og 532 á vorönn. Meira »

„Þú ert númer 44 í röðinni“

10:14 Unnið er að viðgerðum á bilun sem varð í morgun á miðlægu netkerfi Símans en truflanir á netsambandi gætu verið til staðar næstu klukkutímana samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækinu. Meira »

Bilun í netkerfi Símans

09:29 Truflanir hafa verið í morgun á netsambandi í gegnum netkerfi Símans en svo virðist sem þær hafa byrjað rétt fyrir klukkan níu. Samkvæmt upplýsingum frá Símanum er um miðlæga bilun að ræða í netkerfi fyrirtækisins og er unnið að viðgerð. Meira »

Vissu ekki hver hefði ekið

08:13 Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um bifreið utan vegar á Álftanesi um klukkan hálftvö í nótt. Þegar á staðinn var komið voru þar tveir ölvaðir karlmenn sem reyndust ekki alveg með það á hreinu hvor þeirra hefði verið undir stýri þegar ökuferðin endaði úti í móa. Meira »

Vatn flæddi yfir veginn

10:03 Aurskriða féll við veginn um Eyrarhlíð í Skutulsfirði seinnipart dags í gær samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Ísafirði. Skriðan fór alveg að veginum en ekki yfir hann og olli því engum skemmdum á honum. Meira »

Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín

Eskifjörður. Hólmatindur er í baksýn.
08:26 Lokun Landsbankans á útibúi bankans á Eskifirði er harðlega mótmælt í ályktun stjórnar Íbúasamtaka Eskifjarðar. Er bent á að útibú Landsbankans hafi verið eina bankastofnunin á Eskifirði og að fyrir vikið hafi Eskfirðingar frekar beint viðskiptum sínum til hans en annarra banka. Meira »

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir forsetaframbjóðandi á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

Í gær, 22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvisjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigurinn mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

Í gær, 22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld og endaði í 19. sæti. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Gretu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næstmest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
Í gær, 22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast um eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á hann þar sem hann hékk á klettasnös. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

Í gær, 22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19. landið til þess að gefa stig. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
Í gær, 21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

Í gær, 19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvisjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, og var þeim Jónsa og Gretu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
Í gær, 21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvosjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson söngvari sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

Í gær, 20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Greta Salóme á facebooksíðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

Í gær, 19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Flugmiðar á frábæru verði til Alicante fram og tilbaka
Vegna forfalla eru til sölu flugmiðar fyrir fjóra til Alicante báðar leiðir. Br...
Gallerí Voff -Hundaskóli sem skilar árangri í 20 ár
Gallerí Voff er eini hundaskólinn á landinu sem er viðurkenndur af umhverfisstof...
Bókhald
Öll almenn bókhaldsþjónusta. Ársreikningar, skattar. Fyrirtæki, einstaklingar...
Starcraft Fellihýsi með fortjaldi
Til sölu Starccraft Fellihýsi 9 ft árg 2000 ásamt nýlegu forjaldi ásett verð 69...
 
Samkoma
Félagsstarf
Sunnudagur27. maí - hv...
Kristniboðssambandið samkoma
Félagsstarf
Háaleitisbraut 58-60 Samkoma í kvöld kl....
Hekla atvinna
Sérfræðistörf
HEKLA óskar eftir bifvélavirkjum til sta...
Opinn fundur
Félagsstarf
Félag sjálfstæð...