Tveir deila fyrsta vinningi

Tveir heppnir lottóspilarar deildu með sér fyrsta vinningi í Lottó 5/40 og hlaut hvor um sig rúmar 27 milljónir í vinning. Annar vinningsmiðinn var seldur á Bensínstöðinni Kletti í Vestmannaeyjum en hinn í áskrift.

Þrír voru með 2. vinning 4/5 og bónustölu. Upphæð á hvern vinningshafa var 219.760 kr. Vinningsmiðarnir voru seldir í N1 á Ártúnshöfða og N1 á Egilsstöðum og í áskrift.

Enginn var með fimm réttar jókertölur. Sjö voru með fjórar réttar jókertölur og fær hver þeirra 100.000 krónur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert