Hundur ók aftan á bíl í Eyjum

Vestmannaeyjar.
Vestmannaeyjar. Brynjar Gauti

Hundur ók aftan á kyrrstæðan bíl við verslunina Vöruval í Vestmannaeyjum í dag. Eigandi bílsins hafði skilið hundinn eftir í sjálfskiptum bílnum sem var í gangi og virðist hundurinn hafa sett hann í gír með þeim afleiðingum að hann ók á bílinn fyrir framan. Eyjafréttir segja frá þessu á vefsíðu sinni.

Minniháttar skemmdir urðu á bílunum að sögn lögreglu sem segir málið að mestu upplýst en að ökuþórinn verði tekinn til yfirheyrslu við fyrsta tækifæri.

Frétt á vef Eyjafrétta.





mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert