Íbúðalán hækka alls um 3-4 milljarða króna
Að mati fjárlagaskrifstofu fjármálaráðuneytisins munu hækkanir á sköttum og gjöldum hins opinbera, eins og þær birtast í bandorminum svonefnda hækka vísitölu neysluverðs um 0,2% á næsta ári.
Að sama skapi mun kaupmáttur ráðstöfunartekna minnka um 0,2%. Með þessu munu íbúðalán landsmanna hækka samanlagt um 3-4 milljarða króna, þannig gæti höfuðstóll 10 milljóna króna láns hækkað um 200 þúsund.
Að óbreyttu munu því ýmis gjöld hækka um áramótin, að því er fram kemur í fréttaskýringu um þessi mál í Morgunblaðinu í dag.. Með hækkun bensín-, olíu- og kolefnisgjalds telur FÍB að bensínlítrinn muni hækka um 3,50 krónur. Þá mun áfengis- og tóbaksgjald hækka um 5,1%. Samkvæmt upplýsingum frá ÁTVR gæti það þýtt hækkun á kartoni af sígarettum um 3,5% og vodkaflaska gæti hækkað um 4,3%, að því gefnu að aðrir þættir en áfengisgjald haldist óbreyttir. Bjórdós, 500 ml., gæti hækkað um 2,7%, rauðvínsflaska um allt að 2,8% og rauðvínskassi um 3,8%.
Skattar og gjöld á áfengi, tóbaki og eldsneyti hafa hækkað um allt að 68% frá hruni, eða langt umfram verðlag.
Leiðrétt: Höfuðstóll hækkar um 20 þúsund kr
Vegna þess sem fram kemur í frétt Morgunblaðsins í dag, og fram kemur hér að ofan, þá skal það leiðrétt að höfuðstóll af 10 milljóna króna íbúðaláni hækkar um 20 þúsund krónur, ekki 200 þúsund. Eftir sem áður er talið að íbúðalán landsmanna í heild sinni hækki um 3-4 milljarða króna vegna áhrifa bandormsins.
Bloggað um fréttina
-
Sindri Viborg Ávana og fíkniefni og verðtryggingin. -
Egill Jón Kristjánsson Tæknilegt gjaldþrot. -
Haraldur Haraldsson Íbúðalán hækka um 3-4 milljarða////þessi anskoatans ríkisstjórn bara fer frá ... -
Njörður Helgason Jólagjöf? -
Andrés Kristjánsson Að axla ábyrgð og finna sameiginlegan og sanngjarnan farveg. -
Jón Baldur L'Orange Jólagjöf ríkisstjórnarinnar til landsmanna -
Kjartan Eggertsson Verðtryggingin er geggjun -
Reynir W Lord Fleiri flýja land...
Innlent »
- D-vítamínbætt mjólk á markað
- Telja neytendur eiga betri rétt
- Unnur Brá: Eina lausnin?
- Tæplega helmingur ók of hratt
- Umgekkst vændiskonur í opinberum ferðum
- Vatnsleki vegna ræktunar
- „Ég er komin með nóg“
- Allt að 25% verðmunur
- „Pawel virðist eitthvað misskilja ferlið“
- Perlan góður kostur fyrir safn
- Með kannabisgræðlinga í bíl
- Rammaáætlunin tilbúin á næstu dögum
- Efla þarf rannsóknir á höfunum
- Bað hana að leyna bréfunum
- Málið var kært, en fellt niður
- Óvíst um fordæmisgildi
- Farþegum með Norrænu fækkaði
- Undir áhrifum á ótryggðum bíl
- Ólafur Ingi: Fagstétt útrýmt?
- Ný stjórn Röskvu
- Innkalla rjómasprautu
- Geir Jón gefur kost á sér
- Má gera athugasemdir í næsta blaði
- Kærir Snorra til lögreglu
- Hvessir undir Eyjafjöllum
- Jón Baldvin biðst afsökunar á bréfi
- 5,5 laxar í þúsund tonnum makríls
- Stöðvarhúslóð í Bjarnarflagi könnuð
- Brotist inn í Húsaskóla
- Þvottavélin lokaði hurðinni
Miðvikudagur, 22.2.2012
- Þingið brást stjórnlagaráði
- Ný skátaöld að hefjast
- Hefur afplánun á Skólavörðustíg
- Auka þarf umfang vöktunar
- Dráttur í beinni
- Þingmenn lesa Passíusálmana
- Ísing á Hellisheiði
- Lánað án trygginga og heimildar
- Allt að 100 ný störf
- Fimm sviptir á Suðurgötu
- Lagaramminn ekki sá einfaldasti
- Mikið sungið í bankanum
- Lögðu hald á marijúna og e-töflur
- Ábendingar til borgarinnar
- 2,1 milljarður í þróunarsjóði
- Jón Baldvin íhugar lögbann
- Varasamur vegarkafli
- Færri fara í tæknifrjóvganir
- Notaði munnhörpu sem hnúajárn
- Fá ekki frítt í sund
- Segist ekki saka sýslumenn um lögbrot
- Stjórnlagaráð
- Umfjöllun í Nýju lífi um bréf Jóns Baldvins Hannibalssonar
- Grunnskólakennari fordæmir samkynhneigð
- Fjárlagafrumvarp 2011
- Landsdómur
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 18. nóvember 2010, Innlent 0,5% kaupmáttarlækkun
- Fimmtudagur, 3. mars 2011, Innlent Lánin upp um sex milljarða
- Föstudagur, 24. desember 2010, Innlent Skriða hækkana skerðir lífskjör almennings
- Laugardagur, 31. desember 2011, Innlent Hundrað skattahækkanir
- Þriðjudagur, 8. mars 2011, Innlent Minna til ráðstöfunar
-
Leita enn að líkum um borð
-
Hundarnir finna dópið strax
-
Umferðamiðstöð sprengd í Peshawar
-
Færir Advania forystu?
-
Fangaverðir hjálpuðu föngum að flýja
-
Fundu lík fimm ára stúlku
-
Talinn hafa skotið bekkjarsystur sína
-
Kristrún: Eigum séns á að komast í úrslitakeppnina





































