Bannið hefur aukið samkeppni

stækka

mbl.is/Jim Smart

Samkeppniseftirlitið segir sterkar vísbendingar vera um að bann við forverðmerkingum á kjöti hafi aukið samkeppni.

Í gær kom fram í frétt á vef Neytendasamtakanna að bann við forverðmerkingum hafi jafnvel leitt til verðhækkana á kjöti.

Segir í tilkynningu frá Samkeppniseftirlitinu að óhjákvæmilegt sé í þessu sambandi að rifja upp að forverðmerkingum nokkurra kjötvinnslufyrirtækja (Kaupfélag Skagfirðinga, Sláturfélag Suðurlands, Reykjagarður, Norðlenska og Kjarnafæði) fyrir verslanir var hætt fyrr á þessu ári eftir að rannsókn Samkeppniseftirlitsins hafði leitt í ljós samkeppnishamlandi samvinnu þessara aðila við Bónus um verð.

Um var að ræða nána samvinnu um smásöluverð Bónuss og afslætti frá því. Í þessum samskiptum fólst því ekki aðeins beiðni Bónuss um verðmerkingar kjötbirgjanna á vörum heldur reyndist samvinnan mun umfangsmeiri. Voru brotin til þess fallin að takmarka samkeppni og valda þannig neytendum tjóni. Í mörgum tilvikum voru þessir aðilar að semja eða fjalla um afslætti frá verði sem í raun stóðu neytendum aldrei til boða í viðkomandi verslunum.

Málalyktir urðu þær að flest kjötvinnslufyrirtækin og Hagar viðurkenndu brot sín og greiddu sektir. Síld og fiskur og Matfugl gerðu það hins vegar ekki, en því máli lauk með 80 milljóna króna sekt. Sú ákvörðun hefur verið kærð til áfrýjunarnefndar samkeppnismála og er þar til meðferðar.

Hefur leitt til gerjunar á markaði

„Í fréttum hefur verið vísað til þess að verð á kjöti hafi hækkað í smásölu um allt að 40% á einu ári. Er þar verið að vísa til verðhækkana á einstökum vörum samkvæmt verðkönnun ASÍ.

Samkvæmt vísitölumælingu Hagstofu Íslands sem mælir reglulega verðbreytingar á hundruðum kjötvara var verðhækkun á kjöti og kjötvörum hins vegar að meðaltali um 13% í smásölu á þessu ári. Af þessu er verðhækkun á fersku og frosnu kjöti (lambakjöti, svínakjöti, nautakjöti og alifuglakjöti) sínu meiri eða um 15-25%.

Verðhækkun á meira unnum kjötvörum úr þessum tegundum (s.s. áleggi, reyktu kjöti o.fl.) var hins vegar aðeins um 6% að meðaltali. Þessi síðarnefndi vöruflokkur samanstendur nær eingöngu af vörum sem áður voru forverðmerktar af birgjum þó bæði ferskt og frosið kjöt hafi áður verið verðmerkt af framleiðendum í nokkrum mæli.

Þær upplýsingar sem liggja fyrir um hækkun á afurðaverði til bænda og hækkun á verði frá kjötvinnslufyrirtækjum til smásala benda til að sú hækkun hafi verið um 15-25% á þessu ári. Virðist það vera heldur meiri verðhækkun en að meðaltali í smásölu eins og rakið er hér að ofan. Sterkar vísbendingar eru því um að afnám forverðmerkinga í smásölu hafi aukið þar samkeppni og verðhækkun ekki orðið eins mikil og ef föst smásöluálagning hefði bæst ofan á heildsöluverð kjötvinnsla.

Ljóst er að bann við forverðmerkingum hefur þegar leitt til breytinga og gerjunar á matvörumarkaði sem hagfelldar eru fyrir neytendur til lengri tíma. Þannig bendir verðmunur milli verslana til verðsamkeppni, sem ekki var áður til staðar. Þá hafa breytingarnar leitt til þess neytendur eru síður blekktir með afslætti frá verði sem í raun aldrei stóð til að bjóða þeim, auk þess sem miklu fleiri vörur eru nú staðlaðar að þyngd sem auðveldar verslunum að verðmerkja vörurnar," segir í tilkynningu frá Samkeppniseftirlitinu.

Skapar forsendur fyrir hagræðingu

Með afnámi forverðmerkinga hafa skapast forsendur fyrir hagræðingu hjá aðilum sem eigi að skila sér í lægra verði. „Má í því sambandi nefna minna birgðahald sem hefur í för með sér hagræðingu. Þá telur eftirlitið að við það að birgjar og matvöruverslanir hætti umfangsmiklu samráði og samvinnu um smásöluverð, afslætti frá því verði og framlegð verslana, ætti að nást fram mikill sparnaður á kostnaði aðila við kjötviðskipti. Framangreint á að gera meira en að vega upp á móti hugsanlegum stofnkostnaði verslana við nýtt fyrirkomulag," segir ennfremur í tilkynningu Samkeppniseftirlitsins.

„Verðkönnun ASÍ og umfjöllun Neytendasamtakanna dregur hins vegar athyglina að því sem Samkeppniseftirlitið hefur varað við, að einhverjir þeirra sem koma að verðlagningu kjötvara kunni að nýta sér þessar breytingar til að hækka verð til skemmri tíma. Samkeppniseftirlitið hefur áður varað við þessu.

Í bréfi eftirlitsins til Neytendasamtakanna, Neytendastofu, ASÍ og Talsmanns neytenda, dagsettu fyrir réttu ári, eða þann 23. desember 2010, kallaði Samkeppniseftirlitið eftir því við stjórnvöld og hagsmunasamtök sem koma að neytendavernd að fylgjast vel með því að breytingarnar komi neytendum til góða og að þess verði gætt að þær verði ekki nýttar til þess að koma fram raunhækkun verðs. Bent var á að eftirlit með verðlagi og verðlagsþróun væri almennt ekki á könnu eftirlitsins," segir í tilkynningu.

Samkeppniseftirlitið ítrekar mikilvægi þess að framangreindar breytingar á verðmerkingum kjötvara skili sér til neytenda með aukinni samkeppni og lægra verði. Mikilvægt er að allir sem að þessu koma, stjórnvöld, hagsmunasamtök og fyrirtæki á markaðnum, fylgist vel með þessu. Sérstaklega er mikilvægt að neytendur sjálfir beiti verslanir virku aðhaldi sem felst í því að versla þar sem viðkomandi kjötvörur eru boðnar á hagstæðasta verði. Í þessu efni ættu Neytendasamtökin að gegna lykilhlutverki.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Kirkjugestir voru teknir til altaris.

Mótorhjólamenn fjölmenntu í messu

21:56 Það var talsvert annað yfirbragð yfir messu í Digraneskirkju í kvöld en venjulega, en þar fór fram svokölluð mótorhjólamessa. Í kirkjunni voru leðurklæddir mótorhjólamenn og utan við kirkjuna var röð glæsilegra mótorhjóla. Meira »

Eldhúsdagsumræðu á Alþingi

21:07 Eldhúsdagsumræður fara fram á Alþingi annað kvöld. Samkvæmt starfsáætlun þingsins á að fresta fundum Alþingis á fimmtudag, en talið er ólíklegt að sú áætlun standist. Meira »

Hrapaði ofan í gil

Slysið varð skammt frá Seljalandsfossi.
19:31 Bresk kona stórslasaðist þegar hún hrapaði ofan í gil stutt frá tjaldstæðinu við Hamragarða, skammt innan við Seljalandsfoss við Þórsmerkurveg. Meira »

Sé ekki í samkeppni við þingið

Þóra Arnórsdóttir og eiginmaður hennar, Svavar Halldórsson, með dótturina sem fæddist 18. maí sl.
18:09 Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi segir að forseti sem rekur eigin stjórnmálastefnu í samkeppni við þjóðkjörið þing geti ekki ræktað sitt meginhlutverk sem er að vera sameiningarafl. Meira »

Leitarmenn kallaðir til baka

Ligitu Solomenceva
18:03 Búið er að kalla til baka þá sem leitað hafa að lettnesku konunni við Meðalfellsvatn í dag. Ekki hafa borist staðfestar fréttir af örlögum konunnar. Meira »

Konan fannst látin

19:11 Lettneska konan sem leitað hefur verið að við Meðalfellsvatn fannst látin síðdegis í dag. Hennar hafði verið saknað frá 13. maí. Flest bendir til að talsvert sé síðan hún lést. Meira »

Kiwanismenn máluðu vitann

Kiwanismaðurinn Björn Viðar mundar rúlluna af fagmennsku.
18:08 Félagar í Kiwansiklúbbnum Skjálfanda á Húsavík notuðu veðurblíðuna í dag til að mála vitann á Húsavíkurhöfða en hann var farinn að láta á sjá. Meira »

Bensíngjöfin festist niðri

17:46 Bíll skemmdist þegar henni var ekið stjórnlaust inn í trjágróður við Hvassaleiti í Reykjavík um kl. 13:30 í dag.  Meira »

Þröstur og Bragi jafnir

17:27 Jafntefli varð í fjórðu og síðustu skák úrslitaeinvígis Braga Þorfinnssonar (2449) og Þrastar Þórhallssonar (2424) um Íslandsmeistaratitilinn í dag en teflt var í Stúkunni við Kópavogsvelli. Meira »

Alsírsku drengirnir áfrýja

16:25 Alsírsku drengirnir sem sakfelldir voru í Héraðsdómi Reykjaness fyrir að framvísa fölsuðum vegabréfum við komu til Íslands hafa áfrýjað dómnum til hæstaréttar. Héraðsdómur dæmdi þá til 30 daga fangelsisvistar þann 30. apríl síðastliðinn. Meira »

Stöðvaður eftir ofsaakstur

17:23 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði í dag ofsaakstur fólksbíls sem ók á miklum hraða eftir Miklubraut. Hann ók m.a. utan í bíl. Ökumaður grunaður um ölvun og vímuefnaneyslu. Meira »

Listflug við Reykjavíkurflugvöll

Á sýningunni var hægt að skoða flugvélar af öllum stærðum og gerðum.
15:54 Fjöldi fólks hefur í dag fylgst með flugvélum sýna listflug á Reykjavíkurflugvelli, en Flugmálafélags Íslands stóð fyrir flugsýningu þar sem hægt var að skoða flugvélar af öllum stærðum og gerðum. Meira »

Ákærður fyrir að stinga mann

Guðgeir Guðmundsson var úrskurðaður í gæsluvarðhald eftir árásina.
14:26 Ákæra gegn Guðgeiri Guðmundssyni, sem sakaður er að hafa 5. mars. sl. stungið tvo starfsmenn lögmannsstofnunnar Lagastoða, verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur á morgun. Annar mannanna særðist lífshættulega og lá í marga daga á gjörgæsludeild. Meira »

Klára kvótamálin í vikunni

Atvinnuveganefnd stefnir að því að klára umfjöllun um frumvarp um veiðigjald í vikunni.
14:05 Boðaður hefur verið fundur í atvinnuveganefnd Alþingis á morgun til að ræða um kvótafrumvörpin. Lilja Rafney Magnúsdóttir, varaformaður nefndarinnar, segir að frumvörpin verði ekki afgreidd úr nefndinni á morgun, en það verði gert síðar í vikunni. Meira »

Mætti innbrotsþjófum í forstofunni

12:05 Húsráðanda í Reykjanesbæ brá töluvert þegar hann kom heim til sín aðfaranótt laugardagsins en í forstofunni mættu honum tveir bláókunnugir karlmenn. Þeir tóku báðir til fótanna og hurfu út í nóttina. Meira »

Landsbjörg leitar enn að Ligitu

Ligitu Solomenceva
14:22 Landsbjörg leitar í dag að hinni 42 ára Ligitu Solomenceva frá Lettlandi. En til hennar hefur ekkert spurst síðan 13 maí. Hún var í sumarbústað við Meðalfellsvatn og var ein á ferð. Meira »

Hreint hjarta besta myndin

Grímur Hákonarson.
13:34 Heimildamynd Gríms Hákonarsonar Hreint hjarta var valinn besta heimildamyndin á Skjaldborg, hátíð íslenskra heimildamynda sem haldin var í sjötta sinn á Patreksfirði um helgina. Meira »

Veðurblíða víða um land

Búast má við fjölda fólks í sundi í dag.
11:35 Hiti fer allt upp í 20 gráður á Norðurlandi í dag en að sögn veðurfræðings hjá Veðurstofu Íslands verður mjög gott veður um allt land í dag og næstu daga. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
NUDD EF ÞÚ ERT MEÐ VÖÐVABÓLGU.
SLEN OG SVEFNLEYSI STAFAR OFT AF VERKJUM Í SKROKKNUM. NUDD GETUR BÆTT ÁSTANDIÐ. ...
OPEL CORSA-C
OPEL CORSA-C Verð kr. 470.000, árgerð 2002, 1.199 cc. Akstur 141 þ. km. Bens...
Palomino Colt árg 2006
Til sölu vel með farið Palomino colt 9,5 fet, árg 2006. Fortjald fylgir með fr...
Bambusstólar
Til sölu 2 mjög vandaðir og góðir bambusstólar, Lækkað verð 15000 kr. stk. Uppl...
 
Sérhæft skrifstofustarf
Sérfræðistörf
Mynd af auglýsingu ...
Sýslumaðurinn á selfosi - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Framkvæmdastjóri
Stjórnunarstörf
Norræni verkefnaútflutningssjóðurinn (No...
Bifreiðauppboð
Uppboð
Sýslumaðurinn á Selfossi Hörðuvöllum 1,...