Hreyfingin í viðræðum við ríkisstjórnina

Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Hreyfingarinnar
Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Hreyfingarinnar mbl.is/Ómar

Þingmenn Hreyfingarinnar hafa undanfarna daga átt í óformlegum viðræðum við oddvita ríkisstjórnarflokkanna um helstu áherslumál Hreyfingarinnar í stjórnmálum er lúta að þjóðaratkvæðagreiðslum, persónukjöri og nýrri stjórnarskrá.

Einnig var rætt um stefnu Hreyfingarinnar í tengslum við aðgerðir vegna skuldavanda heimilanna, almenna leiðréttingu lána og afnám verðtryggingar, að því er segir í tilkynningu frá þingmönnum Hreyfingarinnar, Birgittu Jónsdóttur, Margréti Tryggvadóttur og Þór Saari.

„Þingmennirnir hafa nálgast þessar viðræður út frá stefnuskrá Hreyfingarinnar og lýst yfir vilja til samstarfs á þeim grundvelli. Viðræðurnar voru vinsamlegar en leiddu ekki til niðurstöðu að sinni."

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert