Mun örugglega styrkja stjórnina
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sagði eftir ríkisráðsfund á Bessastöðum í dag, að breytingar sem gerðar voru þar á ríkisstjórninni muni örugglega styrkja stjórnarsamstarfið. Konur eru nú í fyrsta skiptið í meirihluta í ríkisstjórn.
„Við erum að fara inn í lokakaflann á þessu stjórnarsamstarfi þar sem mörg verkefni eru fyrir höndum. Það var tilkynnt í september 2010 að það yrði fækkun í ráðherraliðinu þegar að þessum breytingum myndi koma,“ sagði Jóhanna.
Um gagnrýni, sem kom fram á breytingarnar á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar í gærkvöldi, sagði Jóhanna, að það sýndi styrkleika að flokkurinn gæti rætt opið og hreinskiptið um svona mál.
Þarf að koma hjólum atvinnulífsins betur í gang
Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG, sagði eftir ríkisráðsfundinn, að breytingarnar á ríkisstjórninni hefðu ekkert með Evrópumálin að gera eins og Jón Bjarnason, fráfarandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, fullyrti. Verið væri að gera breytingar á ríkisstjórninni í samræmi við stjórnarsáttmálann. Aðspurður um ólgu í flokki hans vegna breytinganna sagði hann, að vissulega væru svona breytingar erfiðar en hann teldi ekki að þær myndu hafa áhrif á stjórnarsamstarfið.
Steingrímur lætur nú af embætti fjármálaráðherra og tekur við embættum sjávarútvegs-, landbúnaðar, efnahags- og viðskiptaráðherra og mun bæta iðnaðarráðuneytinu við þegar Katrín Júlíusdóttir fer í fæðingarorlof, væntanlega í febrúar. Til stendur að sameina þessi ráðuneyti í eitt atvinnuvegaráðuneyti.
Um þetta sagði Steingrímur, að hann kveddi fjármálaráðuneytið með miklum söknuði og eftirsjá og hann væri afar þakklátur því góða fólki, sem þar hefði unnið mikið þrekvirki undanfarin þrjú ár við að glíma við þær ógnarlegu aðstæður sem upp komu í hruninu.
„En nýjar aðstæður kalla á nýjar áskoranir. Ég helli mér þá í efnahags- og atvinnumálin. Það er spennandi áskorun en um leið þarf að glíma þar við mörg erfið viðfangsefni. Nú þurfum við að koma hjólum atvinnulífsins betur í gang og hagvexti og skapa störf. Það er að mörgu leyti mjög spennandi að búa til öflugt atvinnuvegaráðuneyti til að gera það,“ sagði Steingrímur.
Bloggað um fréttina
-
Gunnar Waage Ógeðfellt stjórnarfar -
Haukur Gunnarsson Jóhanna ekki enda árið með því að segja ósatt. -
Ásdís Sigurðardóttir Á meðan sumur kjósa að stinga höfðinu í sandinn þá ... -
Innlent »
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 31. desember 2011, Innlent Tekur við lyklavöldunum
- Þriðjudagur, 29. nóvember 2011, Innlent Jón er enn ráðherra
- Laugardagur, 31. desember 2011, Innlent Segir stjórnina meirihlutastjórn
- Föstudagur, 30. desember 2011, Innlent Steingrímur verði atvinnuvegaráðherra
- Föstudagur, 16. desember 2011, Innlent Breytingar á ráðherraskipan taka tíma
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































