X-G leitar frambjóðenda
Haust og litadýrð á Þingvöllum. Náttúruvernd er í fyrirrúmi í stefnuskrá Hægri grænna. Þorvaldur Örn Kristmundsson
Hægri-grænir hyggjast ýta kosningabaráttu sinni úr vör þegar nákvæmlega ár verður til þingkosninga 2013 og er á þessu stigi horft til 21. apríl nk. í þessu efni. Flokkurinn stefnir á að nota listabókstafinn G en bókstafinn A til vara. Boðið verður fram í öllum kjördæmum.
Guðmundur Franklín Jónsson athafnamaður segir mikinn hug í félagsmönnum en eins og fram kemur í niðurlagi fréttarinnar er áhugaverðra frambjóðenda nú leitað.
„Eru orðnir að stórri fjöldahreyfingu“
„Við komum til með að bjóða fram í öllum sex kjördæmum. Hægri-grænir eru orðnir að stórri fjöldahreyfingu. Tilkynnt verður formlega um framboðið með tilheyrandi mörgum undirskriftum þegar nákvæmlega ár er til kosninga. Við erum búnir að tryggja okkur lénið X-G fyrir grænt og ætlum að sækja um þann listabókstaf hjá dómsmálaráðuneytinu. Til vara sækjum við um bókstafinn A. Við eigum bæði lénin, xg.is og xa.is,“ segir Guðmundur Franklín.
„Haldinn verður blaðamannafundur þegar ár er til kosninga. Við teljum að kosningar verði líklegast 21. apríl 2013 og horfum því til 21. apríl nk. Þá verður stefna flokksins kynnt í 45 liðum og í framhaldinu verður mánaðarlega birt stefna í málum sem efst eru á baugi hverju sinni,“ segir Guðmundur Franklín og nefnir lífeyrissjóðs-, sjávarútvegs- og bankamál sem dæmi um líklega málaflokka í stefnumótuninni.
Tuttugu manns komið að undirbúningnum
- Hvernig hefur undirbúningi verið háttað?
„Tuttugu manns hafa unnið að undirbúningnum sleitulaust í eitt ár.“
- Hvað finnst þér um frammistöðu ríkisstjórnarinnar?
„Hún er skelfileg. Það var svo sem ekki við öðru að búast. Það sýnir sig í öllum skoðanakönnunum að almenningur treystir ekki Alþingi. Stjórnarandstaðan nýtur heldur ekki trausts. Ég held að það sé kominn tími til að gefa fjórflokknum frí.“
Afþakka „pólitíska lukkuriddara“
Guðmundur Franklín heldur áfram:
„Við komum til með að auglýsa eftir áhugaverðum einstaklingum sem hafa áhuga á að bjóða sig fram fyrir fólkið um allt land. Við munum hreinlega auglýsa í Morgunblaðinu eftir fólki. Pólitískir aðilar, alþingismenn og menn sem hafa verið í pólitík, eru afþakkaðir sem og lukkuriddarar á síðasta söludegi,“ segir Guðmundur Franklín og hlær.
Bloggað um fréttina
-
Tómas Ibsen Halldórsson Fjöldi framboða verður í boði fyrir næstu þingkosningar -
Guðmundur Jónas Kristjánsson Fyrsta alvöru hægraframboðið frá tíma Íhaldsflokksins
Innlent »
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 4. janúar 2012, Innlent Áburður verði í samræmi við íslenskar kröfur
- Fimmtudagur, 26. apríl 2012, Innlent Hægri grænir kynntu stefnumál sín
- Fimmtudagur, 12. apríl 2012, Innlent „Hvar eru peningarnir, Jóhanna?“
- Laugardagur, 26. febrúar 2011, Innlent Lærðu ekki af Skotum
- Fimmtudagur, 9. febrúar 2012, Innlent Ætlar að birta upplýsingar um kadmíum
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































