Jón Gunnarsson: Ögmundur kastar steinum úr glerhúsi

mbl.is

Jón Gunnarsson alþingismaður fer hörðum orðum um Ögmund Jónasson innanríkisráðherra í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag. Hann segir m.a. að ummæli  Ögmundar og annarra flokksforingja VG séu hræsni og sýni ekkert annað en fremur ógeðfelldar hliðar pólitísks samstarfs VG og Samfylkingarinnar. 

Í grein Jóns segir m.a.: „Blekkingarnar verða ekki sannleikur þótt menn gefi þeim hátíðleg eða nýstárleg nöfn og Ögmundur snýr öllu á haus þegar hann reynir að telja fólki trú um að allur þessi vandræðagangur sé dæmi um bætt vinnubrögð. Honum trúa fáir sem betur fer og sýnir það sig best í skoðanakönnunum þar sem niðurstaðan er sú að bæði VG og ríkisstjórnin eru rúin trausti. Hann líkir Sjálfstæðisflokknum við úlf í sauðargæru og ráðleggur fólki að leggja við hlustir eftir því sem við sjálfstæðismenn segjum. Ég tek undir þetta með Ögmundi, fólk á að leggja við hlustir, það hefur aldrei verið mikilvægara en nú. Margt af því sem hann segir um stefnu Sjálfstæðisflokksins er að sjálfsögðu ósatt, en annað hárrétt.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert