Siglt samkvæmt áætlun á morgun

Herjólfur á siglingu.
Herjólfur á siglingu. mbl.is/Sigurður Bogi

Gert er ráð fyrir því að Herjólfur sigli til Þorlákshafnar samkvæmt áætlun á morgun. Farþegar eru engu að síður beðnir um að fylgjast með fréttum enda geta áætlanir breyst. Þá eru farþegar hvattir til að gefa sér góðan tíma í akstur til og frá Þorlákshöfn enda geti verið hálka á vegum.

Áætluð brottför frá Vestmannaeyjum er klukkan 8 og 15.30 en frá Þorlákshöfn kl. 11.45 og 19.15. Hægt er að fylgjast með fréttum af Herjólfi á vefsvæði hans, herjolfur.is, og síðu 415 í Textavarpi RÚV.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert