Stofnanir deila um salt
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur segir í tilkynningu, sem birt er með listum yfir notendur iðnaðarsalts, ekki rétt eins og komið hafi fram í fréttum að eftirlitið hafi hafnað því að birta listana. Þá vill það ítreka að það sé ekki sammála þeim stjórnsýsluákvörðunum sem Matvælastofnun (MAST) tók í kjölfar þess að það uppgötvaðist að Ölgerðin væri að dreifa iðnaðarsalti til manneldis.
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur segir, að eftir að stofnunin fékk upplýsingar um málið hafi hún hafið rannsókn á því hverjir hefðu saltið undir höndum. Jafnframt hefði eftirlitið verið ósammála þeirri ákvörðun MAST að heimila Ölgerðinni að selja matvælafyrirtækjum saltbirgðir sínar. Starfsleyfi Ölgerðarinnar væri ekki á hendi MAST heldur Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur. Við rannsókn hefði komið í ljós að engar saltbirgðir væru hjá matvælaframleiðendum og einungis stærstu kaupendur saltsins vissu af málinu.
Kaupendur yrðu upplýstir
„Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur fór fram á að öllum kaupendum yrðu sendar upplýsingar þar sem fram kæmi að um væri að ræða að iðnaðarsalt en ekki salt sem ætlað er í matvælaframleiðslu. Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur einnig óskað eftir upplýsingum um geymslu og framleiðslu saltsins. Ölgerðin upplýsti að hún hefði hafið dreifingu manneldissalts þegar í nóvember,“ segir í tilkynningu stofnunarinnar.
Matvælastofnun sagði á vef sínum í gær, að hún hefði lagt til við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur að hlutast yrði til um að Ölgerðin kæmi með almennar upplýsingar um málið þannig að það yrði gert opinbert. Þessu hefði Ölgerðin hafnað.
„Stofnunin harmar hins vegar að Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur skuli í framhaldi af þessu koma með harða gagnrýni á störf Matvælastofnunar í fjölmiðlum og þá sérstaklega í ljósi þess að engin athugasemd hefur verið gerð við sölu vörunnar til margra ára frá dreifingarfyrirtæki sem er undir þeirra eftirliti, fyrr en Matvælastofnun tók málið upp," segir á vef Matvælastofnunar.
Bloggað um fréttina
-
Davíð Þ. Löve Ölgerðin með kjaft! -
Gunnar Heiðarsson Stimpillaust "iðnaðarsalt". -
Heimir L Fjeldsted Ég tek upp þykkjuna -
Guðmundur Ásgeirsson Iðnaðarsaltkaupendur í stafrófsröð -
Vilborg G Hansen Ekki benda á mig! -
Sigurður Haraldsson Alltaf sama sagan! -
Viggó Jörgensson Ölgerðin átti sjálf að vita betur. -
Guðrún María Óskarsdóttir. Hvar er Lýðheilsustofnun í stóra saltmálinu ? -
Gísli Foster Hjartarson Íslenska leiðin!!! -
Kristinn Snævar Jónsson Hverra hagsmuna gætir Matvælastofnun í reynd? -
Jóhanna Magnúsdóttir (Iðnaðar)salt og ljós ..
Innlent »
Sunnudagur, 27.5.2012
-
Peningar ekki rót alls ills
- Fyrst til að verða meistari í bílasmíði
- Átta umferðarslys á tíu dögum í og við Búðardal
- Þriðja árið í röð í 19. - 20. sæti
- Flestir hlynntir staðgöngumæðrun
- Catalina er í fullu fjöri
- Skjaldborg í skjóli fjalla
- Fisvél brotlenti við Klaustur
- Náttúru, sögu og nytjum gerð skil
- Þóra opnar skrifstofu
- Veðrið leikur við landsmenn
- Lettneska konan enn ófundin
- Við akstur undir áhrifum kannabis
- Gleymdist að slökkva á eldavélinni
- Fjölmennasti hópurinn frá upphafi
- Voru frelsinu fegnar
- Margir sóla sig í sundi í dag
- „Svona sending er ný reynsla“
- „Ég reyni að lifa lífinu til fulls“
- „Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“
- Par villtist á leiðinni í Þórsmörk
- 65 brautskráðir á Sauðárkróki
- „Þú ert númer 44 í röðinni“
- Vatn flæddi yfir veginn
- Bilun í netkerfi Símans
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 14. janúar 2012, Innlent Skipulagt verði sameiginlegt eftirlit
- Föstudagur, 20. janúar 2012, Innlent Iðnaðarsaltið ekki hættulegt
- Föstudagur, 13. janúar 2012, Innlent MAST má birta niðurstöður strax
- Mánudagur, 16. janúar 2012, Innlent Eftirlitið hjá framleiðslulandinu
- Þriðjudagur, 24. apríl 2012, Innlent Áburður undir leyfðum vikmörkum
-
Annan segir morðin hryllileg
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú


































