Frávísunartillaga lögð fram
Fjórir þingmenn hafa lagt fram dagskrártillögu á Alþingi um að vísa frá þingsályktunartillögu Bjarna Benediktssonar um að ákæra á hendur Geir H. Haarde verði felld niður. Þetta eru Magnús Orri Schram, Eygló Harðardóttir, Birgitta Jónsdóttir og Lilja Rafney Magnúsdóttir.
Í tillögunni segir að Alþingi fari með ákæruvald í málum vegna embættisbrota ráðherra. Ákvörðun þess, sem fari með almennt ákæru- eða saksóknarvald um að fella niður ákæru, verði að byggjast á málefnalegum rökum. Þetta leiði af grunnreglum stjórnsýslunnar. Alþingi sé á sama hátt bundið af sjónarmiðum um málefnalegar forsendur. Niðurfelling ákæru mundi fyrst og fremst eiga við ef í ljós kæmi að við útgáfu ákæru hefði verið byggt á röngum forsendum í grundvallaratriðum eða fram kæmu nýjar upplýsingar sem röskuðu grundvelli máls.
Í tillögunni segir síðan: „Ákæruvaldi Alþingis í málum vegna meintra brota ráðherra í embætti er þannig fyrir komið að eftir að þingið hefur ákveðið að gefa út ákæru er áframhaldandi umsjón saksóknarvaldsins falin saksóknara þingsins. Verði slíkur saksóknari þess áskynja að málshöfðun sé byggð á röngum forsendum í grundvallaratriðum væri honum rétt að beina því til þingsins að fella hana niður af þeim sökum.
Í því máli sem hér um ræðir hefur ekki orðið neinn sá forsendubrestur sem réttlætir að fallið verði frá málinu. Engin slík beiðni hefur borist, hvorki frá saksóknara Alþingis né Landsdómi. Landsdómur hefur hins vegar hafnað með úrskurði kröfu um að vísa málinu frá í heild og standa því eftir fjögur atriði málshöfðunarinnar af sex óhögguð."
Bloggað um fréttina
-
Ómar Geirsson Framsóknarauðvaldið lætur ekki að sér hæða. -
Axel Jóhann Hallgrímsson Uppskrift að bananalýðveldi -
Sædís Ósk Harðardóttir Hvers vegna má ekki leggja þessa tillögu fram?
Innlent »
- Efla þarf rannsóknir á höfunum
- Bað hana að leyna bréfunum
- Málið var kært, en fellt niður
- Óvíst um fordæmisgildi
- Farþegum með Norrænu fækkaði
- Undir áhrifum á ótryggðum bíl
- Ólafur Ingi: Fagstétt útrýmt?
- Ný stjórn Röskvu
- Innkalla rjómasprautu
- Geir Jón gefur kost á sér
- Má gera athugasemdir í næsta blaði
- Kærir Snorra til lögreglu
- Hvessir undir Eyjafjöllum
- Jón Baldvin biðst afsökunar á bréfi
- 5,5 laxar í þúsund tonnum makríls
- Stöðvarhúslóð í Bjarnarflagi könnuð
- Brotist inn í Húsaskóla
- Þvottavélin lokaði hurðinni
- Borgarstarfsmenn ósáttari
- Ekkert samráð um frumvarpið
- Ferðamannastraumur til Akureyrar
- Heimsmeistari kvenna í skák keppir hér á landi
- Vindorka könnuð og kortlögð
- Virðingarleysi við vinnu allra
- Vestan stormur við suðurströndina í kvöld
Miðvikudagur, 22.2.2012
- Auka þarf umfang vöktunar
- Dráttur í beinni
- Þingmenn lesa Passíusálmana
- Ísing á Hellisheiði
- Lánað án trygginga og heimildar
- Allt að 100 ný störf
- Fimm sviptir á Suðurgötu
- Lagaramminn ekki sá einfaldasti
- Mikið sungið í bankanum
- Lögðu hald á marijúna og e-töflur
- Ábendingar til borgarinnar
- 2,1 milljarður í þróunarsjóði
- Jón Baldvin íhugar lögbann
- Varasamur vegarkafli
- Færri fara í tæknifrjóvganir
- Notaði munnhörpu sem hnúajárn
- Fá ekki frítt í sund
- Segist ekki saka sýslumenn um lögbrot
-
Ómarkviss þjóðaratkvæðagreiðsla
- Varað við lúmskri ísingu
- „Þetta eru forkastanleg vinnubrögð“
- Aftur til stjórnlagaráðs
- Vill ESB-tillögu á dagskrá
- Nokkur fjöldi mála í athugun
- Hæfileikakeppni á mbl.is og Skjá einum
- Fjallað um bréf Jóns Baldvins til unglingsstúlku
- Vilja úttekt á stöðu verslunar í miðborginni
- Lýst eftir stolnum bíl
- Fordæma árás á starfsmann
- Litskrúðugt og líflegt í Fríhöfninni
- Umfjöllun í Nýju lífi um bréf Jóns Baldvins Hannibalssonar
- Grunnskólakennari fordæmir samkynhneigð
- Fjárlagafrumvarp 2011
- Landsdómur
- Kvótafrumvarp
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 20. janúar 2012, Innlent Atkvæðagreiðsla að hefjast
- Föstudagur, 20. janúar 2012, Innlent Tveir ráðherrar sögðu nei
- Föstudagur, 20. janúar 2012, Innlent Frávísun felld
- Miðvikudagur, 16. febrúar 2011, Innlent Icesave-samningur samþykktur
- Miðvikudagur, 13. apríl 2011, Innlent Vantrauststillaga felld
-
Hundarnir finna dópið strax
-
Umferðamiðstöð sprengd í Peshawar
-
Færir Advania forystu?
-
Fangaverðir hjálpuðu föngum að flýja
-
Fundu lík fimm ára stúlku
-
Talinn hafa skotið bekkjarsystur sína
-
Kristrún: Eigum séns á að komast í úrslitakeppnina
-
Bragi: Sorglegt baráttuleysi
Ferðaþjónusta
GRÍMSEY ÞÓRSHÖFN ÍSAFJÖRÐUR VOP...
Háskólakennsla
Tvö störf við Verkfræði- og náttúruvís...




































