Fellir niður kröfur vegna stofnfjárbréfa

Stjórn Eignasafns Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að fella niður kröfur á stofnfjárhafa í Sparisjóði Svarfdæla, sem félagið á í gegnum félagið Hildu hf.

Þessar kröfur eru lán til rúmlega 100 aðila, sem veitt voru af Sögu Fjárfestingarbanka í árslok 2007 í tengslum við stofnfjáraukningu í Sparisjóði Svarfdæla. Lánin voru síðar seld yfir í systurfélag bankans, Hildu. ESÍ yfirtók Hildu á miðju síðasta ári og hefur frá þeim tíma farið með forræði á ofangreindum lánum.

Að sögn Seðlabankans hafa nú verið höfðuð 96 dómsmál á hendur Hildu þar sem gerðar eru þær kröfur að lánin verði dæmd ólögmæt með vísan til niðurstöðu Hæstaréttar frá því 24. nóvember 2011 í svokölluðum Byr-málum og þess fordæmis sem niðurfelling Landsbankans á stofnfjáreigendalánum hjá Sparisjóði Keflavíkur skapaði.

Stjórn ESÍ segist telja vafa ríkja um hvort lögmæti krafna vegna lána til kaupa á stofnfé í Sparisjóði Svarfdæla sé að fullu sambærilegt og þær kröfur sem dæmt var um í svokölluðum Byr-málum og þær kröfur sem Landsbankinn felldi niður. Með ákvörðun sinni nú sé stjórnin ekki að taka beina afstöðu til þess álitamáls en hins vegar verði ekki framhjá því litið að kröfur þessar og tilefni þeirra sé að ýmsu leyti sambærilegt.

Eftir þá ákvörðun Landsbanka Íslands að fella niður lán sem veitt voru í tengslum við stofnfjáraukningu í mörgum sparisjóðum um líkt leyti og umrædd lán mæli sanngirnisrök með því, að lánin vegna kaupa á stofnfjárhlutum í Sparisjóði Svarfdæla verði felld niður.

Seðlabankinn segir, að fjárhagslegir hagsmunir Seðlabankans og ríkissjóðs til samans í þessu máli séu tiltölulega litlir og langvarandi deilur fyrir dómstólum um þetta efni geti tafið verulega fyrir því að ríkissjóður fái til sín eign sína í Sparisjóði Svarfdæla og sett í uppnám endurskipulagningu fjármálaþjónustu á svæðinu. Það sé því mat stjórnar ESÍ að almannahagsmunum sé best borgið með því að fella ofangreindar kröfur niður.

Niðurfelling ofangreindra krafna er háð þeim skilyrðum, að stofnfé sem lagt var að veði fyrir lánunum verði afhent Hildu/ESÍ og að fyrirhuguð kaup Landsbanka Íslands á rekstri Sparisjóðs Svarfdæla verði samþykkt af nægjanlegum fjölda stofnfjárhafa.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert