Friða Skerjafjörð innan Kópavogs

Kristín Linda Árnadóttir, forstjóri Umhverfisstofnunnar, Guðrún Pálsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs, Svandís …
Kristín Linda Árnadóttir, forstjóri Umhverfisstofnunnar, Guðrún Pálsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs, Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra og Hilmar J. Malmquist, forstöðumaður Náttúrufræðistofu Kópavogs.

Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra, hefur staðfest friðlýsingu hluta Skerjafjarðar innan bæjarmarka Kópavogs, með fjörum ásamt grunnsævi en með undirskrift ráðherrans öðlast friðlýsingin lagagildi.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kópavogsbæ en þar segir einnig að fulltrúar Kópavogsbæjar, Náttúrufræðistofu Kópavogs og Umhverfisstofnunar hafi gert með sér samning um umsjón og rekstur hins friðlýsta svæðis.

Bæjarstjórn Kópavogs samþykkti friðlýsinguna fyrir sitt leyti á fundi 10. janúar síðastliðinn.

„Friðlýst eru tvö svæði, annars vegar um 39 hektara svæði í Kópavogi og hins vegar um 24 hektara svæði í Fossvogi, alls um 62 hektarar. Þrjú önnur svæði hafa þegar verið friðlýst í bænum, þ.e.a.s. Víghóll árið 1983, Borgarholtið árið 1981 og Tröllabörn í Lækjarbotnum árið 1983,“ segir í tilkynningunni.

Markmiðið með friðlýsingunni sé að vernda lífríki við ströndina, í fjöru og á grunnsævi, en þar sé undirstaða fyrir afar fjölbreytt fuglalíf allan ársins hring. Jafnframt að vernda útivistar- og fræðslugildi svæðisins en strandlengjan sé vinsæl til útivistar og í Fossvogi séu iðkaðar siglingar og annað sjósport.

„Í samningnum um umsjón og rekstur svæðisins er m.a. kveðið á um að Náttúrufræðistofa Kópavogs vakti náttúru svæðisins og lífríki þess og gefi Umhverfisstofnun og Kópavogsbæ ábendingar um aðsteðjandi hættur. Umhverfisstofnun, Kópavogsbær og Náttúrufræðistofa Kópavogs sameinast einnig um að kynna verndarsvæðið m.a. með fræðsluefni, bæklingum og skiltum.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert