Stal olíu af vörubifreið

Reuters

Rétt fyrir klukkan sjö í morgun kom eigandi vörubifreiðar að manni sem var að stela dísilolíu af eldsneytistanki bifreiðarinnar þar sem hún var geymd í iðnaðarhverfinu á Ártúnshöfða.

Styggð kom að manninum þegar hann varð var við eiganda vörubifreiðarinnar og ók hann í flýti á brott af vettvangi. Við það bakkaði hann fyrst á vörubifreiðina og ók síðan áfram en rakst þá á jeppabifreið sem var þar í stæði. Síðan ók þjófurinn á brott. Greinargóð lýsing fékkst á þjófnum og bifreiðinni sem hann ók. Talið var að horfið hefðu 50 til 100 lítrar af tanki vörubifreiðarinnar, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert