Neituðu allir sök
Allir sakborningar í skotárásarmálinu í Bryggjuhverfinu í Reykjavík neituðu sök við þingfestingu málsins í dag. Lögreglan var með mikinn viðbúnað í dómsal en mennirnir eru taldir hafa tengsl við vélhjólasamtök.
Mennirnir, Axel Már Smith, Kristján Halldór Jensson og Tómas Pálsson Eyþórsson, eru allir ákærðir fyrir tilraun til manndráps með því að hafa að kvöldi föstudagsins 18. nóvember 2011 farið saman á bifreið, á bifreiðastæði við bifreiðasöluna Höfðahöllina að Tangarbryggju 14 í Reykjavík, þar sem þeir höfðu mælt sér mót við mann vegna ágreinings um fjárskuld.
Í ákæru segir að Kristján Halldór hafi skotið úr haglabyssu einu skoti í áttina að bíl mannsins, en ekki hæft. Þegar svo maðurinn ók á brott veittu mennirnir honum eftirför og skaut Kristján Halldór öðru skoti út um glugga bifreiðarinnar. Við skotið brotnaði afturrúða bíls fórnarlambsins og miklar skemmdir urðu á bifreiðinni.
Með þessari háttsemi eru mennirnir taldir hafa stofnað lífi og heilsu fórnarlambsins í augljósan háska.
Tveir mannanna voru fluttir í dómsal í handjárnum og fylgdu þeim sex lögreglumenn. Frekar óvanalegt er að svo mikill viðbúnaður sé við flutning sakborninga, og til merkis um að mennirnir eru taldir mjög hættulegir.
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 7. mars 2012, Innlent Skotárásarmál dómtekið
- Miðvikudagur, 7. mars 2012, Innlent Farið fram á sex ára fangelsi
- Fimmtudagur, 22. mars 2012, Innlent Dæmdir fyrir skotárás
- Mánudagur, 21. maí 2012, Innlent Skotárásarmaður áfrýjaði dómi
- Mánudagur, 5. mars 2012, Innlent „Vildi ná þessum gaur af sér“
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri





































