Tvær líkamsárásir í miðborginni

Lögreglan að störfum í miðborg Reykjavíkur. Mynd úr safni
Lögreglan að störfum í miðborg Reykjavíkur. Mynd úr safni mbl.is/Július

 Tilkynntar voru tvær líkamsárásir í miðborginni í nótt en mikill erill var hjá lögreglu í nótt vegna útkalla sem tengdust hávaða og ölvun á höfuðborgarsvæðinu.

Um tvöleytið var tilkynnt líkamsárás við veitingastað við Laugaveg milli tveggja manna og dyravarðar. 

 Klukkan rúmlega fjögur var síðan tilkynnt líkamsárás við veitingahús í Bankastræti en þar hafði maður verið sleginn í andlitið.  Maðurinn, sem var í mjög annarlegu ástandi vildi ekki aðstoð áhafnar sjúkrabifreiðar.  Þegar lögreglumenn kynntu manninum að ekkert yrði frekar  gert í málinu að svo stöddu fór maðurinn að atast í lögreglumönnum og hóta þeim.  Var maðurinn handtekinn og færður á lögreglustöð þar sem hann var síðar vistaður í fangageymslu vegna ástands síns, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu.

Tilkynnt var að maður hefði slasast við að falla niður stiga á veitingahúsi við Bankastræti á fimmta tímanum í nótt.  Maðurinn var fluttur á slysadeild með sjúkrabifreið en ekki er vitað um hve alvarleg meiðsl hans voru.

Ökumaður bifreiðar var stöðvaður á Dvergabakka á fjórða tímanum í nótt en hann er  grunaður um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna, án ökuréttinda, á ótryggðu ökutæki og vera með röng skráningarnúmer (tvö ósamstæð númer) á bifreiðinni.  Maðurinn látinn laus að lokinni sýna- og upplýsingatöku en lögregla fjarlægði einnig númerin af bifreiðinni. 

Lögregla stöðvaði mann við akstur bifreiðar í  Fjarðarhrauni í Hafnarfirði klukkan 3.22 í nótt.  Grunur var um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna auk þess sem hann ók um á  vanbúnu ökutæki.  Ökumaður var látinn laus að lokinni sýna- og upplýsingatöku.

Maður var stöðvaður við akstur bifreiðar á Sæbraut grunaður um ölvun við akstur klukkan 4.14 í nótt.  Hann var látinn laus að lokinni sýna- og upplýsingatöku.

Á sjötta tímanum í morgun var kona stöðvuð við akstur bifreiðar á Geirsgötu grunuð um ölvun við akstur.  Hún var látin laus að lokinni sýna- og upplýsingatöku.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert