81% hótelgesta útlendingar

Langflestir hótelgesta eru útlendingar
Langflestir hótelgesta eru útlendingar mbl.is/Ernir Eyjólfsson

Gistinætur á hótelum í janúar voru 71.600 samanborið við 53.600 í janúar 2011. Gistinætur erlendra gesta voru um 81% af heildarfjölda gistinátta í janúar en gistinóttum þeirra fjölgaði um 37% samanborið við janúar 2011. Á sama tíma fjölgaði gistinóttum Íslendinga um 21%, samkvæmt frétt á vef Hagstofu Íslands.

Gistinætur á hótelum höfuðborgarsvæðisins voru 59.500 í janúar og fjölgaði um 34% frá fyrra ári. Á Norðurlandi voru 2.300 gistinætur í janúar sem er 52% aukning frá fyrra ári. Á Suðurlandi voru gistinætur 4.700 eða 44% fleiri en í janúar 2011.

Á Suðurnesjum voru gistinætur 3.500 sem er 21% aukning frá fyrra ári. Á samanlögðu svæði Vesturlands og Vestfjarða fjölgaði gistinóttum einnig milli ára, voru 900 samanborið við 800 í janúar 2011. Á Austurlandi voru gistinætur á hótelum í janúar svipaðar á milli ára eða um 800.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert