Braust inn í hús í Eyjum

mbl.is

Í vikunni var lögreglunni í Vestmannaeyjum tilkynnt að maður hefði brotið sér leið inn í hús í bænum en hann mun hafa átt eitthvað vantalað við húsráðanda. Húsráðandinn var reyndar ekki heimavið þegar hinn óboðni mætti á staðinn, en hann mun hafa brotið spjald í útidyrahurð til að komast inn. Er vitað hver þarna var að verki og telst málið að mestu upplýst.

Eitt umferðaróhapp var tilkynnt lögreglu í Vestmannaeyjum í vikunni en þarna hafði ökumaður misst stjórn á bifreið sinni á Höfðavegi þegar dimmt él skall á. Engin slys urðu á fólki í óhappinu og þá varð lítið sem ekkert tjón á bifreiðinni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert